Tæp 30 tonn af viði til Elkem

Undanfarna daga hefur umtalsvert magn viðar verið flutt frá Vaglaskógi til Elkem á Grundartanga. Lestað var síðasta föstudag og viðurinn var keyrður suður á mánudag.

Flutningarnir, lestun og aflestun gekk mjög vel. Stærstur hluti viðarins sem var fluttur var stafafura en einnig var eitthvað af lerki og rauðgreni. Áætluð þyngd viðarins er rétt innan við 30 tonn, segir í frétt á vef Skógræktar ríkisins.

 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert