Sjötíu milljarðar í sjúkrahús

Landspítali.
Landspítali. Ómar Óskarsson

Áætlaður heildarkostnaður íslenska ríkisins við fyrirhugaða uppbyggingu Landspítala nemur 72 milljörðum króna. Er þá litið til stofnkostnaðar, kostnaðar við endurbætur á eldra húsnæði og kostnaðar við tækjakaup. Áfallinn kostnaður er 2,7 milljarðar króna.

Þetta kemur fram í svari Guðbjarts Hannessonar velferðarráðherra við fyrirspurn Birnu Lárusdóttur, varaþingmanns Sjálfstæðisflokksins.

Í svarinu segir að forhönnun nýrra bygginga Landspítala við Hringbraut liggi fyrir. Kostnaðaráætlun vegna nýbyggingarinnar hefur verið uppfærð af SPITAL-ráðgjafateyminu til samræmis við forhönnunina sem liggur fyrir til verðlags í október 2012. Þá hefur kostnaðaráætlun verið rýnd af VSÓ-ráðgjöf og danska ráðgjafarfyrirtækinu NIRÁS.

Stofnkostnaður vegna nýbygginga meðferðarkjarna, rannsóknarhúss og sjúkrahótels, samtals um 77 þúsund fermetrar er um 41,1 mia.kr. Kostnaður vegna bílastæðahúss, tæknihúss, tengiganga og tengibrúa ásamt kostnaði við gatnagerð, veitur, lóð og bílastæði er samtals um 3,2 mia.kr. Rekstur verkkaupa á hönnunar- og framkvæmdatíma, aðkeypt ráðgjöf á hönnunar- og framkvæmdatíma og framkvæmdaeftirlit er um 2,8 mia.kr. Samtals er áætlaður kostnaður við nýframkvæmdir um 47,1 mia.kr. Áfallinn kostnaður frá 2010 við samkeppni og forhönnun er 1,4 mia.kr.

Kostnaður við endurbætur á eldra húsnæði var áætlaður um 11 mia.kr. í apríl 2009. Framreiknað með byggingarvísitölu til verðlags í október 2012 er áætlaður kostnaður við endurbætur um 12,9 mia.kr. Rétt er að benda á að endurbæturnar eru tímasettar í tveimur áföngum eftir að nýbyggingum er lokið.

Kostnaður við lausar innréttingar, húsgögn og tækjabúnað er áætlaður um 12 mia.kr. Þessi upphæð fer mikið eftir því hvert ástand tækjabúnaðar verður þegar flutt verður í nýbyggingarnar þar sem hluti búnaðar verður fluttur yfir í þær nýju. Gert er ráð fyrir að búnaðurinn þurfi ekki að koma allur á sama tíma og er miðað við að um 7 mia.kr. þurfi í upphafi og það sem eftir verður dreifist á allt að sjö ár.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert