35-40 m/s í hviðum í kvöld

Sunnanlands nær veðurhæð með austanáttinni hámarki nú undir kvöldið. Snarpar hviður 35-40 m/s verða undir Eyjafjöllum og í Öræfasveit, en dregur úr mestu veðurhæðinni í kvöld.  Eins verða hviður 30-40 m/s fram á kvöld undir Hafnarfjalli og á Kjalarnesi. Það hlánar smámsaman, einnig um landið norðanvert, og hætt er við flughálku þegar blotnar á ís og klaka á vegunum.

Þetta kemur fram í ábendingum veðurfræðings Vegagerðarinnar.

 Hálka eða hálkublettir eru víða bæði á  Suður- og Vesturlandi. Óveður er undir Eyjafjöllum.

 Á Vestfjörðum er hálka og hálkublettir. Hálka og skafrenningur er á  Þröskuldum. Snjóþekja og skafrenningur er á Steingrímsfjarðarheiði og á Klettsháls. Hálka og skafrenningur er á Hrafnseyrarheiði og snjóþekja og skafrenningur á Dynjandisheiði.

 Á Norðurlandi vestra er hálka á flestum leiðum þó eru hálkublettir á Vatnsskarði.

 Á Norðausturlandi er hálka.

 Á Austurlandi er víða hálka eða hálkublettir. Flughálka er báðu megnin við Fáskrúðsfjarðargöngin.

 Á Suðausturlandi eru hálkublettir nokkuð víða.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert