Hætt við flughálku

mbl.is/Kristinn

Sunnanlands nær veðurhæð með austanáttinni hámarki nú undir kvöldið. Snarpar hviður, 35-40 m/s, verða undir Eyjafjöllum og í Öræfasveit, en dregur úr mestu veðurhæðinni í kvöld. Eins verða hviður 30-40 m/s fram á kvöld undir Hafnarfjalli og á Kjalarnesi.  

Það hlánar smámsaman, einnig um landið norðanvert, og hætt er við flughálku þegar blotnar á ís og klaka á vegunum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni.

Færð og aðstæður

Hálka eða hálkublettir eru víða bæði á  Suður- og Vesturlandi. Óveður er undir Eyjafjöllum. Flughálka er í Grafningi.

Á Vestfjörðum er hálka og hálkublettir. Hálka og skafrenningur er á  Þröskuldum. Snjóþekja og skafrenningur er á Steingrímsfjarðarheiði og á Klettsháls. Þæfingsfærð og skafrenningur er á Hrafnseyrarheiði og á Dynjandisheiði.

Á Norðurlandi vestra er hálka á flestum leiðum þó eru hálkublettir á Vatnsskarði.

Á Norðausturlandi er hálka. Flughálka er frá Húsavík og í Kelduhverfi.

Á Austurlandi er víða hálka eða hálkublettir. Flughálka er báðu megnin við Fáskrúðsfjarðargöngin.

Á Suðausturlandi eru hálkublettir nokkuð víða.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert