Hættustigi lýst yfir á stóru svæði

Ríkislögreglustjóri hefur ákveðið í samráði við lögreglustjórana á Selfossi, Suðurnesjum, höfuðborgarsvæðinu, Akranesi, Borgarfirði og Dölum, Snæfellsnesi, Vestfjörðum, Blönduósi, Sauðárkróki, Akureyri og Húsavík, að lýsa yfir hættustigi almannavarna vegna óveðurs sem spáð hefur verið á vestan- og norðanverðu landinu.

Búast má við miklu óveðri og ófærð auk þess sem stórstreymt er í fyrramálið og getur veðrið haft áhrif á sjávarhæð.  Við þessar aðstæður má einnig búast við ísingu á raflínum, segir í tilkynningu frá almannavörnum.

Óvissuástandi var lýst yfir á Vestfjörðum öllum fimmtudaginn 27. desember vegna snjóflóðahættu.  Í framhaldi af því var hættuástandi vegna snjóflóðahættu lýst yfir á Patreksfirði, í Hnífsdal, á Flateyri og á Ísafirði auk þess sem nokkrir bæir á Vestfjörðum hafa verið rýmdir.

Óvissuástandi vegna snjóflóðahættu var lýst yfir á Mið-Norðurlandi föstudaginn 28. desember.

Skilgreining á hættustigi almannavarna:

Ef hættumat leiðir í ljós að hætta fer vaxandi verður að grípa til tafarlausra ráðstafana til að tryggja sem best öryggi þeirra sem á svæðinu búa/dvelja. Slíkt er gert með því að efla viðbúnað neyðar- og öryggisþjónustunnar á viðkomandi svæði, ásamt því að grípa til fyrirbyggjandi aðgerða s.s. rýmingar, brottflutnings eða lokunar svæða. Einnig eru leiðbeiningar og viðvaranir einkennandi fyrir þetta stig.

Halldór Þormar Halldórsson
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert