Missti þúsundir lítra af mjólk

Guðmundur Geir Gunnarsson, mjólkurbússtjóri.
Guðmundur Geir Gunnarsson, mjólkurbússtjóri.

Mjólkurbú MS á Selfossi missti þúsundir lítra af mjólk og þarf að farga þúsundum lítra af ýmsum sýrðum vörum eftir rafmagnsleysið í gær auk þess sem öll framleiðsla í búinu var stopp í rúman hálfan sólarhring.

Þetta kemur fram í ítarlegri frétt á Sunnlenska.is.

„Við verðum alltaf fyrir miklu tjóni þegar rafmagnið fer og ég tala nú ekki um þegar við fáum ekki rafmagn á rafskautaketilinn sem framleiðir gufuna sem við notum til gerilsneyðingar og þvotta,“ sagði Guðmundur Geir Gunnarsson, mjólkurbússtjóri, í samtali við sunnlenska.is í morgun.

Enn er ekki komið rafmagn á rafskautaketilinn en það kemur væntanlega í kvöld. Þangað til verður að keyra olíugufukatlana til að framleiða gufuna.

Að sögn Guðmundar tekur um 8 til 9 klukkustundir að ræsa olíugufukatlana og var það gert í nótt. Starfsmenn mjólkurbúsins unnu að því að koma þeim í fulla framleiðslu eins fljótt og hægt var og um klukkan fimm í morgun var komin gufa.

„Öll starfsemi í mjólkurbúinu var stopp í tólf klukkustundir, frá klukkan 17 í gær til klukkan fimm í morgun. Við missum mjólk sem var verið að gerilsneyða þá stundina þegar rafmagnið fór og er hún talin í þúsundum lítra,“ segir Guðmundur.

„Þá náðum við ekki að klára framleiðslu og pökkun í mörgum deildum þegar rafmagnið fór og það eru þúsundir lítra af ýmsum sýrðum vörum sem verður að farga,“ segir Guðmundur en hann telur að tjónið sem MS hefur orðið fyrir í rafmagnsleysinu hlaupi á milljónum króna.

Frétt Sunnlenska.is í heild.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert