Telur forsendur ekki hafa breyst

Mörður Árnason, alþingismaður.
Mörður Árnason, alþingismaður. mbl.is/Ernir Eyjólfsson

„Ég er ekki sammála því en sjálfsagt er að ræða það við Steingrím og VG ef þeir eru þeirrar skoðunar,“ segir Mörður Árnason, þingmaður Samfylkingarinnar og fulltrúi í utanríkismálanefnd Alþingis, í samtali við mbl.is.

Steingrímur J. Sigfússon, atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra og formaður Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs, sagði meðal annars í nýárskveðju til flokksmanna sinna að ekki yrði komist hjá því að endurmeta stöðu aðildarviðræðnanna við Evrópusambandið í ljósi breyttra forsenda.

„Óumflýjanlegt er að endurmeta nú stöðu viðræðna við Evrópusambandið í ljósi breyttra forsendna og búa um það mál með ábyrgum hætti. Þar verður vilji þjóðarinnar sjálfrar að varða veginn úr því ljóst er orðið að ekki reyndist unnt að leggja málið í hennar dóm á kjörtímabilinu í formi atkvæðagreiðslu um samning eða efnislega niðurstöðu eins og til stóð,“ sagði Steingrímur í kveðjunni. Þá sagði hann að verkefni næstu vikna yrði að ákveða með hvaða hætti búið yrði um málið „til næstu mánaða og missera og hvenær og hvernig verður leitað leiðsagnar frá þjóðinni í þeim efnum“.

Mörður er ekki sammála því að forsendur hafi breyst og að ástæða sé til þess að endurmeta málið þó sjálfsagt sé að ræða það við samstarfsflokkinn í ríkisstjórn. „Það hefur áður heyrst sú skoðun að hafa atkvæðagreiðslu um framhald Evrópusambandsviðræðnanna samhliða kosningunum og sú hugmynd er athyglisverð,“ segir hann.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert