Fylgjast með eldstöðvum úr lofti

Það vantar ekki tæknibúnaðinn í TF-SIF. Mynd úr safni.
Það vantar ekki tæknibúnaðinn í TF-SIF. Mynd úr safni. mbl.is/Árni Sæberg

Flugvél Landhelgisgæslunnar, TF-SIF, flaug í gær yfir Öskjuvatn, Grímsvötn og Kötlu til að kanna aðstæður á svæðinu með  hitamyndavél og eftirlits- og leitarratsjá flugvélarinnar.

Greint er frá þessu á vef Landhelgisgæslunnar.

Þar kemur fram, að í fluginu hafi aðstæður til myndatöku verið ágætar yfir Öskjuvatni. Flogið hafi verið yfir vatnið m.a. til að afla gagna til samanburðar við myndir sem teknar voru í byrjun apríl 2012. Þá kom í ljós að Öskjuvatn var orðið íslaust og óskaði almannavarnadeild ríkislögreglustjóra þá eftir flugi TF-SIF yfir vatnið. Þótti óvanalegt að vatnið væri íslaust að vori til en þá hafði um skeið verið óvenjuhlýtt á landinu. Önnur vötn á hálendinu  t.d.  Hágöngulón, og Mývatn voru þrátt fyrir það ekki íslaus.

Í eftirlitsfluginu voru aðstæður til radarmyndatöku ekki sem bestar yfir Grímsvötnum og Kötlu. Á vef Gæslunnar segir, að erfitt sé að segja til um hvort breyting hafi orðið á yfirborði jökulsins. Voru upplýsingar sendar til almannavarna og jarðvísindamanna.

„Að fenginni reynslu hafa starfsmenn á flugvélinni TF-SIF breytt starfsvenjum sínum talsvert. Í stað þess að einblína á ferðir sjófarenda þá eru hreyfingar Íslands einnig orðnar viðfangsefni, einkum m.t.t. jarðhræringa sem geta varðað almannaheill. Má þar nefna eldana á Fimmvörðuhálsi, Eyjafjallajökli og í Grímsvötnum sem standa okkur næst í tíma, en í þeim hamförum stóðu áhafnir TF-SIF í fremstu línu varðandi gagnaöflun og almannavarnir,“ segir á vef Landhelgisgæslunnar.




mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert