Seinkun veldur eldri borgurum vonbrigðum

mbl.is/Þorkell

Kjaramálnefnd Landssambands eldri borgara (LEB) lýsir undrun sinni á að frumvarp um breytingar á lögum um almannatryggingar skuli ekki hafa verið lagt fram. Þessi seinkun valdi eldri borgurum  miklum vonbrigðum vegna þess að mikilvægi þess að einfalda kerfi almannatrygginga hafi verið í sjónmáli.

Fram kemur í ályktun LEB, að nefnd hafi verið að störfum til að endurskoða almannatryggingar og komist að niðurstöðu um breytingar sem hafi verið kynntar víða. Það hafi staðið til að leggja frumvarpið  fram á Alþingi þessu til staðfestingar á haustönn 2012, en það hafi enn ekki orðið.

„Því miður eru margir eldri borgarar sem eiga erfitt með að skilja almannatryggingakerfið enda stagbætt og mjög flókið. Hin nýja leið, sem stefnt er að, einfaldar alla þætti til að fólk geti með vissu fundið út hvar það er statt í kerfinu. Þessi seinkun veldur eldri borgurum  miklum vonbrigðum vegna þess að mikilvægi þess að einfalda kerfi Almannatrygginga var í sjónmáli og samþykkt tillagnanna myndi bæta verulega stöðu eldri borgara. Í ljósi þessa sætir það undrum að það skuli vera valin sú prósenta hækkunar á bótaflokkum Almannatryggingar um þessi áramót sem ekki fylgir einu sinni verðlagshækkunum eins og lög gera ráð fyrir,“ segir í ályktuninni.

Þá segir að auk þess vanti enn meiri hækkun til þess að staðið sé við ákvæði kjarasamninga miðað við 1. febrúar 2013. 

„Eldri borgarar lýsa líka mikilli óánægju með miklar verðlagshækkanir nú um áramót s.s. á þjónustugjöldum til lækna, lyfjakostnaði og fjölda annarra hækkana sem fólk þarf að mæta án nokkurra leiðréttinga.

Við skorum á stjórnvöld að bretta upp ermar og sjá til þess að þessi hópur í samfélaginu verði ekki skilinn eftir við lagfæringar á kjörum,“ segir í ályktuninni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert