Atvinnuleysið 5,8% á síðasta ári
Skráð atvinnuleysi í desember 2012 var 5,7%, en að meðaltali voru 8.958 atvinnulausir í desember og fjölgaði um 396 að meðaltali frá nóvember eða um 0,3 prósentustig. Að meðaltali var skráð atvinnuleysi á árinu 2012, 5,8%.
1.300-1.400 luku bótarétti um áramót
Um síðustu áramót rann út bráðabirgðaákvæði sem gerði atvinnuleitendum sem misstu starf sitt eftir 1. mars 2008 kleift að fá greiddar atvinnuleysistryggingar í allt að 48 mánuði og er hámarksbótaréttur atvinnuleysistrygginga nú 36 mánuðir. Sú breyting leiðir af sér að nú um áramótin luku um 1.300‐1.400 atvinnuleitendur bótarétti sínum. Þessi breyting leiðir til minnkunar á skráðu atvinnuleysi hjá Vinnumálastofnun í janúar.
Atvinnuleysi eykst yfirleitt í janúar vegna árstíðasveiflu á vinnumarkaði. Minnkun á skráðu atvinnuleysi mun ekki verða jafnmikil og tekur til fjölda þeirra sem misstu bótarétt sinn um síðustu áramót. Vinnumálastofnun gerir því ráð fyrir að skráð atvinnuleysi í janúar muni af þessum ástæðum verða á bilinu 5,1%‐5,5%.
Körlum á atvinnuleysisskrá fjölgaði um 285 að meðaltali og konum um 111. Atvinnulausum fjölgaði um 151 á höfuðborgarsvæðinu en um 245 á landsbyggðinni. Atvinnuleysið var 6,1% á höfuðborgarsvæðinu og fór úr 5,9% í nóvember.
Á landsbyggðinni var atvinnuleysið 5% og fór úr 4,5% í nóvember. Mest var atvinnuleysið á Suðurnesjum, 10,2%, og fór úr 9,6% í nóvember. Minnst var atvinnuleysið á Norðurlandi vestra, 2,1%.
Meira atvinnuleysi meðal kvenna en karla
Atvinnuleysið var 5,3% meðal karla og fór úr 5% í nóvember og 6,1% meðal kvenna og fór úr 6% í nóvember. Alls voru 9.489 manns atvinnulausir í lok desember. Þeir sem voru atvinnulausir að fullu voru hins vegar 8.567.
Um 254 fleiri karlar voru á skrá í lok desember en 176 fleiri konur á skrá í lok desember en í nóvemberlok. Á landsbyggðinni fjölgaði um 299 en um 131 á höfuðborgarsvæðinu.
Þeir sem hafa verið atvinnulausir lengur en sex mánuði samfellt eru nú 4.818 og hefur fækkað um sjö frá lokum nóvember og eru um 51% þeirra sem eru á atvinnuleysisskrá í desember.
15% atvinnulausra á aldrinum 15-24 ára
Þeir sem verið hafa atvinnulausir í meira en eitt ár voru 3.277 í desemberlok og fjölgaði um 13 frá lokum nóvember. Alls voru 1.450 á aldrinum 16‐24 ára atvinnulausir í lok desember 2012 eða um 15% allra atvinnulausra í desember. Í lok desember 2011 var fjöldi atvinnulausra ungmenna 2.040 og hefur því fækkað um 590 milli ára í þessum aldurshópi.
Alls voru 1.730 erlendir ríkisborgarar án atvinnu í lok desember, þar af 1.019 Pólverjar eða um 59% þeirra útlendinga sem voru á skrá í lok mánaðarins. Flestir atvinnulausra erlendra ríkisborgara voru starfandi í gistingu og veitingastarfsemi, 247.





















