Sendi Obama heillaóskir

Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, sendi í dag Barack Obama forseta Bandaríkjanna, heillaóskir í tilefni af embættistöku hans.

„Í bréfinu ítrekaði forseti Íslands trausta vináttu og langvarandi tengsl þjóðanna og fagnaði sérstaklega yfirlýsingum Obama í ræðunni sem hann flutti við embættistökuna, hvatningu hans til öflugrar baráttu gegn loftslagsbreytingum og víðtækra breytinga á orkukerfum á grundvelli sjálfbærrar nýtingar.

Forseti Íslands áréttaði að tengslin milli ofsaveðra og bráðnunar íss á Norðurslóðum væru nú æ fleirum ljós eins og vísindaleiðangur kínversku Heimskautastofnunarinnar, sigling Snædrekans frá Shanghæ til Íslands, á liðnu sumri hefði borið vitni um.

Sambandið á milli bráðnunar íss og jökla á heimskautasvæðum og í Himalajafjöllum og brýnnar umbreytingar á orkukerfum veraldar yrði að vera kjarninn í nýrri stefnu allra þjóða. Því markaði ræða Obama við embættistökuna afgerandi þáttaskil.

Þá væru og bundnar miklar vonir við formennsku Bandaríkjanna í Norðurskautsráðinu á næstu árum.

Forseti vék einnig í bréfinu að möguleikum Bandaríkjanna á sviði jarðhitanýtingar og lýsti vilja íslenska tækni- og vísindasamfélagsins til að efna til náinnar samvinnu á því sviði,“ segir í fréttatilkynningu sem forsetaskrifstofan hefur sent frá sér.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert