Varað við blæðingum í slitlagi

Bílar hafa skemmst vegna tjörublæðingar
Bílar hafa skemmst vegna tjörublæðingar mbl.is/Skapti

Vegagerðin varar við blæðingum í slitlagi og þá einkum í Austur-Húnavatnssýslu vestan Blönduóss. Ennfremur eru vegfarendur á leiðinni á milli Reykjavíkur og Akureyrar varaðir við því að slitlagskögglar af bifreiðum geti verið varasamir.

Þess utan er hálka eða hálkublettir víða á landinu. Þannig eru hálkublettir eru á Mosfellsheiði og hálka í Grafningi og á Kjósarskarðsvegi. Hálkublettir eru á Fróðárheiði á Vesturlandi en aðrar leiðir greiðfærar.

Ennfremur er hálka á Þröskuldum, Steingrímsfjarðarheiði og Hálfdáni á Vestfjörðum en hálkublettir á Mikladal og Kleifaheiði. Einnig eru hálkublettir á kafla í Ísafjarðardjúpi og á Innstrandavegi.

Hálkublettir eru að sama skapi víða á Norðurlandi. Hálka er þannig á Fljótsheiði og þaðan austur á öræfin. Sér í lagi er varað við slæmri hálku við Másvatn á Mývatnsheiði.

Þá er hálka á fjallvegum austanlands og til landsins. Snjóþekja er á Vatnsskarði eystra og Fjarðarheiði en flughálka á Fagradal. Greiðfært er hins vegar frá Fáskrúðsfirði suður um með ströndinni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert