Hjón fái að búa saman á Hrafnistu

Hrafnista í Reykjavík.
Hrafnista í Reykjavík. mbl.is/Þorvaldur Örn Kristmundsson

Í kjölfar umræðu um aðskilnað hjóna þegar annað þeirra þarf á dvöl á hjúkrunarheimili að halda en hitt ekki hefur Hrafnista kynnt fyrir velferðarráðuneytinu tilraunaverkefni sem fyrirhugað er að ráðast í til að mæta slíkum aðstæðum fólks.

Í Kastljósi var nýverið rætt við Pál Bergþórsson, fyrrverandi veðurstofustjóra, en eiginkona hans, Hulda, dvelur á hjúkrunardeild Hrafnistu og þurfa þau hjón að sofa í sitthvorum staðnum eftir rúmlega sextíu ára samvistir.  Hann sagði í viðtalinu að á þessum tíma lífsins væri nauðsynlegt fyrir hjón að búa saman og hefur hann sótt um vist á Hrafnistu til að geta verið við hlið eiginkonu sinnar allan sólarhringinn.

Á vef velferðarráðuneytisins kemur fram að í viðræðum velferðarráðuneytisins og Hrafnistu síðustu daga hefur verið rætt um leiðir til að koma til móts við aðstæður eins og hér hefur verið lýst þannig að hjón kjósa helst að dvelja saman þótt aðeins annað þeirra sé í þörf fyrir hjúkrunarrými.

Hrafnista hefur gert tillögu að slíkri leið sem felur í sér að tengja saman leiguíbúðir við hjúkrunardeild á Hrafnistu. Er þá miðað við að hjón geti dvalið í íbúð þar sem greitt aðgengi er að hjúkrunarálmunni og nauðsynlegri umönnun og aðstoð. Það hjónanna sem er með gilt mat færni- og heilsumatsnefndar myndi þá njóta allrar þeirrar þjónustu sem fylgir dvöl í hjúkrunarrými á sömu forsendum og aðrir íbúar hjúkrunarheimilis.

Hitt þeirra myndi búa í sömu íbúð en greiða leigu og kaupa þjónustu að eigin vali. Velferðarráðuneytið hefur fallist á að Hrafnista geri tilraun með þetta fyrirkomulag.

Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra segist á vef ráðuneytisins vera ánægður með frumkvæði Hrafnistu um að finna leiðir til að mæta þörfum fólks við þessar aðstæður og að velferðarráðuneytið styðji frumkvæði að þessu tagi.

„Ég tel afar æskilegt að hjúkrunarheimili sem hafa aðstæður til að sýna þennan sveigjanleika og bæta þannig lífsgæði aldraðra geri það ef tryggt er að það skerði á engan hátt þjónustu við þá aldraða sem eru með gilt mat færni- og heilsumatsnefnda um þörf fyrir hjúkrunarrými. Eins og dæmin sanna geta aðstæður fólks verið mjög mismunandi og því er mikilvægt að þróuð séu fjölbreytt búsetuform svo fólk hafi val sem mætir þörfum hvers og eins,“ segir Guðbjartur á vef ráðuneytisins.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert