Búið að telja rúm 3 þúsund atkvæði

Unnur Brá Konráðsdóttir er í öðru sæti
Unnur Brá Konráðsdóttir er í öðru sæti

Talin hafa verið 3.079 atkvæði í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi. Ragnheiður Elín Árnadóttir er enn sem fyrr með afgerandi stuðning í fyrsta sætið. Engin breyting hefur orðið á fimm efstu sætunum.

Þegar talin hafa verið 3079 atkvæði er röð efstu frambjóðenda þessi:

1.            Ragnheiður Elín Árnadóttir - 2.086 atkvæði í 1. sæti

2.            Unnur Brá Konráðsdóttir - 1.210 atkvæði í 1. – 2. sæti

3.            Ásmundur Friðriksson - 1.253 atkvæði í 1. – 3. sæti

4.            Vilhjálmur Árnason - 1.120 atkvæði í 1. – 4. sæti

5.            Geir Jón Þórisson - 1.418 atkvæði í 1. – 5. sæti

Aðrir frambjóðendur hafa hlotið færri atkvæði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert