Ragnheiður Elín skipar fyrsta sætið

Þingmennirnir Ragnheiður Elín Árnadóttir og Árni Johnsen.
Þingmennirnir Ragnheiður Elín Árnadóttir og Árni Johnsen. mbl.is

Ragnheiður Elín Árnadóttir skipar fyrsta sætið á lista Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi en lokatölur voru að berast úr kjördæminu. Staða fimm efstu er óbreytt og því ljóst að Árni Johnsen er væntanlega á útleið af þingi en hann er ekki meðal fimm efstu.

Alls voru greidd 3988 atkvæði í prófkjörinu. Auðir og ógildir seðlar voru 107 talsins. Kjörsókn var 44 %.

1.            Ragnheiður Elín Árnadóttir - 2497 atkvæði í 1. sæti

2.            Unnur Brá Konráðsdóttir - 1480 atkvæði í 1. – 2. sæti

3.            Ásmundur Friðriksson - 1517 atkvæði í 1. – 3. sæti

4.            Vilhjálmur Árnason - 1411 atkvæði í 1. – 4. sæti

5.            Geir Jón Þórisson - 1808 atkvæði í 1. – 5. sæti

Sundurliðun

Lokatölur í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmii.
Lokatölur í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmii. Grafík Elín Ester
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert