Kristján Þór í fyrsta sæti

Kristján Þór Júlíusson
Kristján Þór Júlíusson mbl.is/Skapti Hallgrímsson

Talningu er lokið í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi. Kristján Þór Júlíusson var langefstur í prófkjörinu en Valgerður Gunnarsdóttir er í öðru sæti. Tryggvi Þór Herbertsson er ekki meðal sex efstu í prófkjörinu.

Á kjörskrá við lok kjörfundar voru 4401 manns. Alls greiddu 2714 atkvæði, kjörsókn var því 61,7 %. Auð og ógild voru 78 atkvæði.

Níu einstaklingar buðu sig fram í prófkjörinu og kosið var um sex sæti. Niðurstaðan er bindandi fyrir þá frambjóðendur sem hlutu 50% greiddra atkvæða.   

Niðurstöður eru eftirfarandi:

Í 1. sæti var Kristján Þór Júlíusson með 2223 atkvæði.       

2.  (í 1.–2. sæti) var Valgerður Gunnarsdóttir með 1291 atkvæði.  

3.  (í 1.–3. sæti) var Ásta Kristín Sigurjónsdóttir með 1158 atkvæði.         

4.  (í 1.–4. sæti) var Jens Garðar Helgason með 1278 atkvæði.       

5.  (í 1.–5. sæti) var Erla S. Ragnarsdóttir með 1529 atkvæði.        

6.  (í 1.–6. sæti) var Bergur Þorri Benjamínsson með 1752 atkvæði.          

Þeir Kristján Þór Júlíusson og Tryggvi Þór Herbertsson, alþingismenn sóttust báðir eftir því að leiða listann í Norðausturkjördæmi. Kristján er núverandi oddviti listans en Tryggvi var í öðru sæti fyrir kosningarnar 2009.

Aðrir í framboði voru Ásta Kristín Sigurjónsdóttir bæjarfulltrúi, Bergur Þorri Benjamínsson viðskiptafræðingur, Erla S. Ragnarsdóttir framhaldsskólakennari, Ingvi Rafn Ingvason tónlistarmaður, Ísak Jóhann Ólafsson framkvæmdastjóri, Jens Garðar Helgason framkvæmdastjóri og Valgerður Gunnarsdóttir skólameistari.

Tryggvi Þór ritar á Facebook síðu sína eftir að úrslitin voru kynnt fyrir frambjóðendum: „Nú er prófkjörinu lokið. Ég leggst sáttur á koddann í kvöld. Sýndi keppinautum mínum drengskap og heiðarleika í hvívetna í baráttunni, en það er í mínum huga það allra mikilvægasta.

En nú er þessu hliðarspori mínu í pólitík lokið og ég sný mér aftur að því sem ég kann best – hagfræði og viðskipum. Það verður óneitanlega munur að losna við hælbítana og illt umtal sem þeim fylgir. Nú er verkefnið að snúa bökum saman og vinna sem einn maður að sigri Sjálfstæðisflokksins í kosningunum í vor!“

Valgerður Gunnarsdóttir.
Valgerður Gunnarsdóttir.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert