Vilborg komin heim

Heimkomu Vilborgar Örnu Gissurardóttur pólfara var fagnað af vinum og vandamönnum í Leifsstöð í nótt.

Vilborg Arna náði markmiði sínu, að komast á suðurpólinn, 17. janúar eftir tæplega þriggja mánaða leiðangur sem mbl.is fylgdist ítarlega með.

Á meðan á göngu Vilborgar stóð safnaði hún áheitum fyrir Líf styrktarfélag Kvennadeildar Landspítalans. Nú hafa safnast um 13,5 milljónir með beinum framlögum fólks og fyrirtækja. 

Enn má leggja söfnuninni lið með því að hringja í símanúmerið 908 1515 og dragast þá 1500 kr af símreikningi eða með frjálsum framlögum á www.lifsspor.is. Einnig er hægt að millifæra inná reikning Lífs styrktarfélags 515 14 411000, kt 501209 1040

Líf styrktarfélag mun standa fyrir móttökuhátíð að viku liðinni í Hörpu þar sem landsmenn geta fagnað afreki Vilborgar, heilsað upp á Vilborgu og skoðað allan búnað hennar. 

Athöfnin fer fram sunnudaginn 3.febrúar kl. 15. í anddyri Hörpu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert