„Hærri tala en ég hef heyrt áður“

Landspítali háskólasjúkrahús
Landspítali háskólasjúkrahús Þorvaldur Örn Kristmundsson

„Þetta er hærri tala en ég hef heyrt áður. Að auki verður að taka tillit til þess að þetta er með launatengdum gjöldum þannig að það verður að byrja á því að draga 25% frá og skipta upphæðinni síðan á milli þeirra 1.348 hjúkrunarfræðinga sem vinna á Landspítalanum,“ segir Elsa B. Friðfinnsdóttir, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, um fréttaflutning af því að stjórnvöld hyggist veita rúmar 400 milljónir til endurskoðunar stofnanasamnings við hjúkrunarfræðinga á Landspítalanum.

Elsa segir að sú tala, sem nefnd hefur verið á fundum deiluaðila, hafi verið nokkuð lægri. Hvað var hún há? „Ég vil ekki greina frá því núna, ég vil fyrst gera hjúkrunarfræðingunum grein fyrir því á mánudaginn. Við höfum rætt um að halda trúnað um það sem rætt er á fundum og við ætlum, okkar megin, að halda þann trúnað fram á mánudag. Ef aðrir ákveða annað, þá er það þeirra mál ef það eru vinnubrögðin sem þeir vilja ástunda.“

„Ég get sagt að ég var á fundi í fjármálaráðuneytinu í gær og þar var nefnd tala sem er nokkuð lægri en þessi. Ef menn ætla að setja út einhverjar tölur, þá eiga þær að vera réttar og ekki að vera í einhverjum blekkingum, sama hvaðan þessi tala hefur komið.“

Elsa B. Friðfinnsdóttir.
Elsa B. Friðfinnsdóttir. Golli / Kjartan Þorbjörnsson
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert