Meiri síldardauði í Kolgrafafirði?

Frá síldardauðanum í Kolgrafarfirði í desember.
Frá síldardauðanum í Kolgrafarfirði í desember. Ljósmynd/Róbert Arnar Stefánsson

Svo virðist sem síldardauði í líkingu við það sem gerðist um miðjan desember sé að eiga sér stað á nýjan leik í Kolgrafafirði á Snæfellsnesi að því er fram kemur á fréttavefnum Skessuhorni. Haft er eftir sjónarvottum sem voru staddir í firðinum síðdegis í dag að þar hafi verið mikið af nýdauðri síld á sömu slóðum og í desember.

Ennfremur er haft eftir öðrum sjónarvotti sem átti leið um Kolgrafafjörð seint í gærdag að hann hafi séð „kraumandi sjó af hálfdauðri síld og þorsk synda að því er virtist vankaðan í land og drepast“. Hugsanlega séu því að skapast aðstæður á nýjan leik eins og þær sem ollu gríðarlegum síldardauða í firðinum fyrir jól.

Frétt Skessuhorns

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert