Vöktunaráætlun gerð fyrir Kolgrafafjörð

Bjarni Sigurbjörnsson (t.v.), bóndi á Eiði, lýsir aðstæðum fyrir Svandísi …
Bjarni Sigurbjörnsson (t.v.), bóndi á Eiði, lýsir aðstæðum fyrir Svandísi Svavarsdóttur umhverfisráðherra og fylgdarliði hennar í fjörunni á Eiði. mbl.is/Gunnar Kristjánsson

Svandís Svavarsdóttir, umhverfis- og auðlindaráðherra, telur mjög mikilvægt að gera áætlun um vöktun ástandsins í Kolgrafafirði á norðanverðu Snæfellnesi. Sem kunnugt er drapst mikið af síld í firðinum fyrir áramótin og rak töluvert af henni á land.

Svandís fór vestur í Kolgrafafjörð í vettvangsferð í gær. Hún byrjaði á að kynna sér aðstæður við bæinn Eiði í Kolgrafafirði og ræddi við ábúendur. Síðan var haldið í fjöruna neðan við bæinn en hún er nú þakin grútarkúlum.

„Það var mjög fróðlegt að ganga þarna um með heimamönnum. Það er gríðarlega mikill grútur þarna í fjörunni,“ segir Svandís meðal annars um þetta mál í Morgunblaðinu í dag. Hún sagði heimamenn segja að grúturinn hefði brotnað hraðar niður upp á síðkastið en þeir hefðu þorað að vona.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert