Sjússamælar hvergi í lagi

AFP

Neytendastofa hefur gert könnun hjá um 20 vínveitingarhúsum og innflytjendum hvort í notkun væru löggilt veltimál (sjússamælar) og vínskammtarar og einnig hvort vínglös og bjórglös hafi viðeigandi merkingar.  Tilgangurinn var að kanna hvort fylgt væri eftir reglum um vínmál sem notuð eru til að mæla skammta áfengis sem ætlað er til sölu.

Af þeim veitingastöðum sem kannaðir voru reyndist enginn vera í lagi. Léttvínsglös reyndust vera ómerkt, en allflestir voru þó með merkt bjórglös. Vínmál og vínskammtarar voru ávallt til staðar en töluvert vantaði upp á að mælarnir væru löggiltir, samkvæmt frétt á vef Neytendastofu.

Bjórglös og bjórkönnur eiga að vera sérstaklega merkt með rúmmáli og áfyllingarstriki, til dæmis á hálfs lítra bjórglas að vera merkt 50 cl og með áfyllingarstrik þannig að neytendur sjái að þeir séu að kaupa rétt magn. Sama á við þegar keypt er glas af léttvíni, glasið á að vera merkt.

Veltimál (sjússamælar) og vínskammtarar eru notuð til að mæla magn af sterku áfengi við sölu. Hægt er að sjá hvort veltivínmál séu löggilt með því að skoða hvort það sé löggildingartákn, faggildingarnúmer og ártal í málinu. Eins á að vera brúnamerki á málinu en það er sett á til að staðfesta að ekki hafi verið reynt að breyta vínmálinu. Vínskammtarar eiga að vera með löggildingarmiða.

Neytendastofa mun fylgja þessu eftir og fara fram á að úr þessum málum verði bætt. Kannað verður áfram ástand vínmála hjá öllum vínveitingastöðum landsins með það að markmiði að stuðla að eðlilegum viðskiptaháttum og jafna samkeppni, segir á vef Neytendastofu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert