Árni Páll: „Ekki ástæða til breytinga á ríkisstjórn“

Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar.
Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar. mbl.is/Kristinn

Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar, segist ekki ætla að gera tillögu um breytingu á ríkisstjórn í kjölfar formannsskipta. „Fáar vikur eru eftir til kosninga og flestöll lykilmál eru þegar komin til meðferðar á Alþingi. Ekki er því ástæða til breytinga á ríkisstjórn við þessar aðstæður.“

Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem Árni Páll hefur birt á vef Samfylkingarinnar.

Þar segir hann að í kjölfar formannsskipta í Samfylkingunni um síðustu helgi hafi hann metið með hvaða hætti sé best að haga liðsskipan Samfylkingarinnar í ríkisstjórn næstu vikur. „Við það mat hef ég haft að leiðarljósi tvennt: Hagsmuni þjóðarinnar af stjórnfestu og þá nauðsyn að finna fyrirheitinu um ný vinnubrögð og hreinskiptin stjórnmál farveg í verkum Samfylkingarinnar við landsstjórnina,“ segir Árni Páll.
 
„Niðurstaða mín er sú að gera ekki við þessar aðstæður tillögu um breytingu á ríkisstjórn. Fáar vikur eru eftir til kosninga og flestöll lykilmál eru þegar komin til meðferðar á Alþingi. Ekki er því ástæða til breytinga á ríkisstjórn við þessar aðstæður.

 
Formaður Samfylkingarinnar er pólitískur talsmaður flokksins og ber ábyrgð á starfi flokksins í ríkisstjórn og mun samkvæmt því umboði leiða stefnumörkun og starf Samfylkingarinnar innan flokks og utan, í samræmi við venju og hefðir þar um,“ segir hann ennfremur í yfirlýsingunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert