Áhöfnin á Júlíusi Geirmundssyni er greinilega hrifin af kleinunum frá Raggagarði í Súðavík því þeir hafa alls borðað 864 kg af kleinum á níu árum. Þetta kemur fram á vefnum Júllanum.
„Júlíus Geirmundsson ÍS byrjaði að kaupa kleinur af Raggagarði árið 2004 og hefur því keypt kleinur í 9 ár. Samkvæmt mínu bókhaldi sem dæmi þá keypti Júllinn 97 kg af kleinum árið 2010 og árið 2011 alls 116 kg. Ef meðaltal af þessu er 96 kg á ári hafa strákarnir torgað tæpu tonni af kleinum eða 864 kg á 9 árum,“ segir á Júllanum.