63,3% andvíg inngöngu í ESB

stækka

AFP

MMR kannaði nýlega afstöðu almennings til þess að Ísland gangi í Evrópusambandið. Af þeim sem tóku afstöðu sögðust 24,2% hlynnt því að Ísland gangi í Evrópusambandið nú, borið saman við 25% í síðustu mælingu (15-20 janúar 2013). Af þeim sem tóku afstöðu sögðust 63,3% vera andvíg því að Ísland gengi í Evrópusambandið nú, borið saman við 62,7% í janúar.

Afstaða til þess að Ísland gangi í Evrópusambandið var breytileg á milli hópa. Karlar voru hlynntari inngöngu Íslands í ESB en konur en af þeim sem tóku afstöðu sögðust 28,5% karla hlynntir, borið saman við 19,2% kvenna.

Eldir hlynntari inngöngu en þeir yngri

Þeim sem voru hlynnt inngöngu Íslands í ESB fjölgar hlutfallslega með auknum aldri. Af þeim sem tóku afstöðu og tilheyrðu yngsta aldurshópnum (18-29 ára) voru 15,6% hlynnt inngöngu Íslands í ESB, á aldrinum 30-49 ára voru 23,2% hlynnt inngöngu og í elsta aldurshópnum (50-67 ára) voru 33,2% hlynnt inngöngu Íslands í ESB.

Íbúar höfuðborgarsvæðisins voru frekar hlynntir inngöngu Íslands í ESB en þeir sem búsettir voru á landsbyggðinni. Af þeim sem tóku afstöðu og bjuggu á höfuðborgarsvæðinu sögðust 28,2% hlynntir því að Ísland gangi í ESB, borið saman við 18,8% þeirra sem búsettir voru á landsbyggðinni.

Hlutfall þeirra sem voru hlynnt inngöngu Íslands í ESB hækkaði með auknum tekjum, að undanskildum efsta tekjuflokki (800 þúsund eða hærra). Af þeim sem tóku afstöðu og voru með heimilistekjur undir 250 þúsund krónur á mánuði voru 14,6% hlynnt því að Ísland gangi í ESB, borið saman við 19,6% þeirra sem höfðu tekjur á bilinu 250-399 þúsund, 26,2% þeirra sem höfðu tekjur á bilinu 400-599 þúsund og 32,2% þeirra sem höfðu tekjur á bilinu 600-799 þúsund. Af þeim sem tóku afstöðu og voru í efsta tekjuflokk (800 þúsund á mánuði eða hærra) sögðust 24,2% hlynnt því að Ísland gangi í ESB.

Fáir andstæðingar ríkisstjórnarinnar vilja í ESB

Mikill munur var á afstöðu fólks eftir því hvort það kvaðst styðja ríkisstjórnina eða ekki. Af þeim sem tóku afstöðu og studdu ríkisstjórnina voru 54,4% hlynnt því að Ísland gangi í ESB, borið saman við 11,7% þeirra sem ekki styðja ríkisstjórnina. Einnig var mikill munur á afstöðu fólks til þess að Ísland gangi í Evrópusambandið eftir stuðningi við stjórnmálaflokka.

Nokkur munur var á afstöðu á meðal þeirra sem studdu ríkisstjórnarflokkanna. Af þeim sem tóku afstöðu og studdu Samfylkinguna voru 78% hlynnt því að Ísland gangi í ESB, borið saman við 22,3% þeirra sem studdu Vinstri græn. Hlutfallslega fæstir þeirra sem styðja Sjálfstæðisflokkinn og Framsóknarflokkinn voru hlynnt því að Ísland gangi í ESB. Af þeim sem tóku afstöðu og studdu Sjálfstæðisflokkinn voru 7,4% hlynnt inngöngu í ESB og 7,7% þeirra sem studdu Framsóknarflokkinn.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Framsókn fundar líka annað kvöld

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Bjarni Benediktsson.
21:24 Miðstjórn Framsóknarflokksins hefur verið boðuð til fundar annað kvöld klukkan 20:30 í Rúgbrauðsgerðinni í Borgartúni í Reykjavík en fundarefnið er fyrirhugað ríkisstjórnarsamstarf við Sjálfstæðisflokkinn og málefnasamningur sem samið hefur verið um að undanförnu á milli formanna flokkanna. Meira »

Umferðin gengið vel um göngin

20:32 Umferðin um Hvalfjarðargöngin hefur gengið vel í dag en eins og venjulega á annan í hvítasunnu hefur hún verið mun meiri en á hefðbundnum mánudegi og að mestu leyti til höfuðborgarsvæðisins. Meira »

„Tilkynning um læti og barsmíðar“

Á síðasta ári fékk lögreglan 1.294 tilkynningar um heimilisófrið, en þar af voru 327 mál ...
20:08 „Tilkynning barst um ólæti og barsmíðar.“ Þannig hóf lögreglumaður skýrslugjöf fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur árið 2012, en hann var kallaður til að bera vitni í máli sem höfðað var gegn manni sem réðist á fyrrverandi sambýliskonu sína. Meira »

Nöfn hjónanna sem létust

18:50 Hjónin sem létust í hjólhýsi sínu í Þjórsárdal 19. maí síðastliðinn hétu Edda Sigurjónsdóttir og Alexander G. Þórsson til heimilis að Lækjarsmára 2 í Kópavogi. Þau voru 67 ára og 72 ára. Þau láta eftir sig þrjú uppkomin börn og átta barnabörn. Meira »

Flokksráðið fundar annað kvöld

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Bjarni Benediktsson.
18:10 Boðað hefur verið til fundar í flokksráði Sjálfstæðisflokksins annað kvöld klukkan 20:30 vegna viðræðnanna um myndun nýrrar ríkisstjórnar sem flokkurinn hefur átt í við Framsóknarflokkinn að undanförnu. Meira »

Trjáskemmdir á Suðvesturlandi

Tré við Fossá í Hvalfirði eru rauðleit á annarri hliðinni.
14:43 Furutré á Suðvesturlandi láta mörg hver á sjá. Að sögn formanns Skógræktarfélags Kópavogs er kenningin sú að snarpt kuldakast frá því í september á síðasta ári hafi leitt til skemmdanna. Hann segir að trén muni vera 2-4 ár að jafna sig. Meira »

Spyr um breytta stöðu á Íslandi

18:33 Hvernig bæri að haga samskiptum Íslands og Evrópusambandsins í framtíðinni ef Íslendinga hafna inngöngu í sambandið í þjóðaratkvæðagreiðslu eða ef tekin verður ákvörðun af hálfu nýrrar ríkisstjórnar landsins um að hætta alfarið aðildarviðræðunum? Meira »

Éljagangur og næturfrost framundan

Kuldalegt er um að litast á samkvæmt hitaspá Veðurstofunnar á miðvikudag.
16:22 Á morgun og á miðvikudag mega íbúar á Norðurlandi búa sig undir éljagang miðað við veðurspá. Nokkur kuldi er í kortunum næstu tvo daga og víða má búast við næturfrosti á aðfaranótt miðvikudags. Sumarhitinn ætlar því enn að láta bíða eftir sér. Meira »

Uppsögn Láru dregin til baka

Lára Hanna Einarsdóttir
14:31 Uppsögn á verktakasamningi þýðandans Láru Hönnu Einarsdóttur við 365 miðla hefur verið dregin til baka, en henni var sagt upp hjá Stöð 2 með 20 daga fyrirvara eftir 25 ára starf. Lára hefur verið í krabbameinsmeðferð, en framkvæmdastjórn félagsins segir að sér hafi ekki verið kunnugt um veikindin. Meira »

Guðni Páll náði Eurovision

Kajakræðarinn Guðni Páll Viktorsson.
14:08 Kajakmaðurinn Guðni Páll Viktorsson er enn í Höfnum á Reykjanesi og hefur verið þar frá því á föstudag á hringferð sinni um landið. Þar situr hann fastur vegna óhagsstæðra veðurskilyrða. Hann býst við því að geta lagt af stað að nýju á þriðjudag eða miðvikudag. Meira »

Ráðist á mann í Dagsetrinu

Lögreglan
13:16 Ráðist var á karlmann í Dagsetri Hjálpræðishersins við Eyjarslóð í Reykjavík. Ekki fengust frekari upplýsingar frá Neyðarlínunni en á vef RÚV segir að ráðist hafi verið á manninn með hníf og að hann hafi verið með meðvitund þegar hann var fluttur á Landspítalann til aðhlynningar. Meira »

Ingólfur á toppinn í fyrramálið

Ingólfur Geir Gissurarson Everest-fari.
12:54 Ingólfur Geir Gissurarson og félagar hans í Everest 2013 hópnum eru komnir í suðurskarð fjallsins, í 7950 metra hæð. Hann á því eftir um 900 metra hæðarhækkun og ekki er ólíklegt að hann verði kominn á toppinn á milli klukkan 6 og 8 í fyrramálið, gangi allt að óskum. Meira »

Kennslanefnd skoðar líkið í dag

Frá Kaldbaksvík á Ströndum.
12:05 Kennslanefnd ríkislögreglustjóra mun í dag hefja vinnu við að bera kennsl á beinagrind sjórekins líks sem fannst í fjörunni í Kaldbaksvík á Ströndum í fyrradag. Þetta segir Bjarni Bogason rannsóknarlögreglumaður og formaður kennslanefndar. Meira »

Yfirdómari einvígis aldarinnar látinn

Lothar Schmid, sem var yfirdómari skákeinvígis aldarinnar milli Spasskys og Fischers í Reykjavík 1972, árið ...
11:38 Lothar Schmid, sem var yfirdómari skákeinvígis Bobbys Fishers og Borís Spasskís í Reykjavík árið 1972 er látinn, 85 ára að aldri. Hann var einn fremsti skákmaður Þýskalands og vann til fjölda verðlauna á ferli sínum. Meira »

Kennir hundum að taka úr vél

Þjálfa má hunda til ýmissa verka, að sögn Auðar Björnsdóttur, hundaþjálfara á Ísafirði.
11:02 Auður Björnsdóttir á Ísafirði hefur þjálfað leiðsöguhunda fyrir blinda, aðstoðarhunda fyrir fatlaða og hund sem leikur í kvikmynd. Auður fékk áhuga á hundaþjálfun fyrir fatlaða er sonur hennar greindist með fötlun. Meira »

Kjalvegur ekki boðleg ökuleið

Kjölur er ekki fær nema sérútbúnum fjallabílum um vetur.
12:02 Fulltrúar þriggja fyrirtækja í ferðaþjónustu skora á stjórnvöld að gera Kjalveg að boðlegri ökuleið fyrir ferðamenn. Segja þeir það skjóta skökku við að bjóða ferðamönnum upp á veg sem 75 þúsund manns nota á ári sem ekki sé almennilega fær. Ekki einu sinni yfir hásumarið. Meira »

Forsetinn ræðir reynslu Íslendinga

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands.
11:26 Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson sækir í dag Alþjóðlegan leiðtogafund sem Viðskiptaskóli Lundúna, London Business School, og sjónvarpsstöðin CNN efna til. Þar mun forsetinn ræða við Richard Quest, stjórnanda viðskiptafrétta hjá CNN, um reynslu Íslendinga af glímunni við efnahagskreppuna Meira »

Tíðinda er að vænta innan skamms

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Bjarni Benediktsson munu halda áfram stjórnarmyndunarviðræðum í dag.
10:38 Formenn Framsóknar- og Sjálfstæðisflokksins funduðu um stjórnarmyndun um helgina og munu áfram funda í dag. Tíðinda er að vænta innan skamms, þó líklega ekki í dag. Þingflokkar flokkanna hafa ekki verið boðaðir á fund í dag, en vinna við stjórnarsáttmála er langt komin. Meira »
FLAGGSTANGIR & FLÖGG. FRÁBÆRT VERÐ.
6 metra vandaðar ál flaggstangir á aðeins kr. 26.800- og vandaðir sterkir íslen...
Lyftarar á fínu verði.
Getum útvegað gæðalyftara á góðu verði. Dæmi: 1,5 tonn rafm.lyftari 2,8 m +vsk ...
SPÁNN - Barcelona - Menorca - Costa Brava
Huggulegar íbúðir til leigu fyrir ferðafólk í Barcelona. Getum útvegað mjög ódýr...
4 herb. íbúð óskast til leigu í 104
Er með 2 börn og óska eftir 4 herb. íbúð til leigu í hverfi 104 en má líka vera ...
 
15317 rs ut hýsing og rekstrarþj.
Tilboð - útboð
15317 - RS UT Hýsing og rek...
Tónlistarkennarar
Sérfræðistörf
Lausar stöður tónlistarkennara Tónlis...
Strá
Sérfræðistörf
Mynd af auglýsingu ...
Aðalfundur reykjavíkurdeildar búmanna

Aðalfundur Reykjavíkurdeildar Búmanna F...