Segir Sigurð átt að vera tálbeitu

Sigurður (til vinstri) mætir á fundinn í morgun. Honum til hægri handar er annar lífvörður ... stækka

Sigurður (til vinstri) mætir á fundinn í morgun. Honum til hægri handar er annar lífvörður hans. pressphotos.biz

Björgvin G. Sigurðsson, formaður allsherjar- og menntamálanefndar Alþingis segir samskipti Ögmundar Jónassonar við  bandarísku alríkislögregluna, FBI, eðlileg. Ljóst sé af framburði „Sigga hakkara“ á fundi nefndarinnar í morgun að FBI hafi ætlað sér að nota hann sem tálbeitu í rannsókn sinni á WikiLeaks.

Nefndin kom saman til að ræða aðgerðir FBI hér á landi sumarið 2011. Sigurður Þórðarson, Siggi hakkari, óskaði sjálfur eftir því að koma fyrir nefndina, en FBI ræddi við hann í ágúst sama ár og hefur Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra sagt að hann telji að FBI hafi ætlað sér að nota Sigurð sem tálbeitu í rannsókn sinni á WikiLeaks.

Sigurður kom á fundinn í fylgd tveggja lífvarða og yfirgaf húsnæði nefndarsviðs Alþingis út um bakdyr. Að sögn sjónarvotta bægðu lífverðirnir fjölmiðlafólki frá Sigurði. 

Gerðu tilraun til að nota Sigurð sem tálbeitu

„Við erum bundin trúnaði um það sem kemur fram á nefndarfundum og snýr að einstaklingum. En almennt má um þetta segja að Sigurður óskaði að gera grein fyrir sinni aðkomu að málinu. Hann hafði sjálfviljugur samband við Alríkislögregluna (FBI) og taldi sig búa yfir upplýsingum sem hann taldi eiga erindi við hana,“ segir Björgvin.

Hvaða upplýsingar voru það? „Hann gerði okkur ekki grein fyrir þeim.“

Björgvin segir fundinn hafa verið gagnlegan og varpað ljósi á málið í heild sinni. „Ég er jafn sannfærður og áður, ef ekki sannfærðari, um að aðkoma innanríkisráðherra að málinu var bæði nauðsynleg og eðlileg. Hann brást hárrétt við. Það blasir við að Alríkislögreglan var að rannsaka hérna tvö mál, bæði WikiLeaks  og yfirvofandi tölvuárás og mér fannst það skýrast enn frekar á þessum fundi í morgun að svo var.“

Var Sigurður notaður sem tálbeita af Alríkislögreglunni til að rannsaka málefni uppljóstrunarvefsins WikiLeaks, eins og Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra hefur sagt? „Já, það mátti alveg skilja Sigurð þannig. Að þeir [FBI] hefðu gert tilraun til þess, sem hefði ekki tekist.“

Fór hvorki yfir strik né út fyrir umboð sitt

„Það var gagnlegt að hitta Sigurð og ágætt að hann kom fyrir nefndina. Það sem snýr að okkur er eftirlitshlutverk með framkvæmdavaldinu og það hvort ráðherra fór yfir eitthvert strik eða út fyrir sitt umboð. Ég tel svo alls ekki vera.“

Spurður að því hvort framhald verði á málinu af hálfu allsherjar- og menntamálanefndar Alþingis segir Björgvin að nefndarmenn eigi eftir að ræða það. „Þorgerður Katrín [Gunnarsdóttir] hefur óskað eftir frekari umræðu og að sjálfsögðu munum við fjalla um það og ræða okkar á mill með hvaða hætti það gæti orðið.“

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Yfir 25 þúsund undirskriftir

05:53 Um 25.500 manns hafa skrifað undir áskorun til Alþingis um að breyta ekki veiðigjaldinu á þeim tveimur sólarhringum sem liðnir eru frá því undirskriftarsöfnunin var sett á stað. Meira »

Þrjár hugmyndir í gangi varðandi Valhöll

Hótel Valhöll brann til grunna árið 2009
05:30 Koma mun í ljós hvaða staður verður fyrir valinu fyrir nýja Valhöll á Þingvöllum í lok árs, að sögn Ólafs Arnar Haraldssonar, þjóðgarðsvarðar á Þingvöllum. Meira »

Vill útskrifa stúdenta 18 ára

Stúdentshúfa
05:30 „Það yrði strax verulegur ávinningur ef okkur tækist að útskrifa stúdenta að jafnaði 18 ára, líkt og í flestum nágrannalöndum okkar, í stað 20 ára,“ segir Þorsteinn Víglundsson, framkvæmdastjóri SA. Hann telur að stytta eigi hvort skólastig um eitt ár, bæði grunn- og framhaldsskólastigið. Meira »

Fundir um Álftanesveg

Nýi Álftanesvegurinn er umdeildur.
05:30 Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra mun í næstu viku hitta andstæðinga þess að Álftanesvegur verði lagður í gegnum Gálgahraun. Í þeim hópi eru m.a. Hraunavinir og fulltrúar úr minnihluta bæjarstjórnar Garðabæjar. Meira »

19. júní á rafrænu formi

19. júní ársrit Kvenréttindafélags Íslands.
Í gær, 23:57 Ársrit Kvenréttindafélags Íslands, 19. júní, kom út í dag að vanda en það er með elstu tímaritum hér á landi og kom fyrst út árið 1951. Að þessu sinni varð hins vegar sú breyting á að tímaritið kom út á rafrænu formi en ekki sem hefðbundið blað. Meira »

Blómsveigur á leiði Bríetar

Blómsveigur lagður á leiði Bríetar Bjarnhéðinsdóttur í dag.
Í gær, 22:49 Kvenréttindafélag Íslands lagði blómsveig að leiði baráttukonunnar Bríetar Bjarnhéðinsdóttur í dag í tilefni af kvenréttindadeginum. Gengið var fylktu liði frá Ráðhúsi Reykjavíkur að leiði Bríetar í Hólavallakirkjugarði þar sem flutt voru ávörp og flutt tónlistaratriði. Meira »

Laxveiðin lífleg

Veitt í Kjarrá.
05:30 „Þetta er með bestu opnunum hjá okkur,“ segir Einar Sigfússon, annar eigandi Haffjarðarár, en 30 laxar veiddust á þrjár stangir fyrstu tvo veiðidagana í ánni. Meira »

Safna fyrir útför ungs drengs

Hólskirkja í Bolungarvík.
Í gær, 23:42 „Sagt er að það þurfi heilt bæjarfélag til að ala upp barn. Öll börn okkar litla samfélags eru á einn eða annan hátt, okkar börn. Nú höfum við orðið fyrir þeim hræðilega harmleik að þurfa að sjá á eftir einum okkar dýrmæta syni, Ísaki Inga Guðbjartssyni sem lést í liðinni viku.“ Meira »

„Sumarið er komið fyrir löngu“

Kristín Hermannsdóttir er hætt sem veðurfræðingur
Í gær, 22:45 „Sumarið er komið fyrir löngu,“ segir Kristín Hermannsdóttir veðurfræðingur en margir landsmenn hafa látið veðrið trufla sig að undanförnu og lögreglan á Suðurnesjum lýsti eftir sumrinu um helgina. Meira »

Kvennamessa við Þvottalaugarnar

Frá Kvennamessunni í dag.
Í gær, 22:31 Kvennakirkjan stóð fyrir árlegri Kvennamessu við Þvottalaugarnar í Laugardal í kvöld í tilefni af kvenréttindadeginum í samvinnu við Kvenréttindafélag Íslands og Kvenfélagasamband Íslands. Meira »

Heyskapur víða að komast í gang

Í gær, 22:17 Bændur huga margir að heyskap um þessar mundir en ástand túna er æði misjafnt eins og komið hefur fram undanfarið.  Meira »

Sigmundur lét skila bíl Jóhönnu

Jóhanna Sigurðardóttir í Benz bifreiðinni á Bessastöðum.
Í gær, 21:55 Forsætisráðuneytið hefur skilað ráðherrabíl sem Jóhanna Sigurðardóttir, fyrrverandi forsætisráðherra, lét panta skömmu áður en hún lét af embætti. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra, ekur því um á bifreið sem keypt var í forsætisráðherratíð Halldórs Ásgrímssonar, árið 2004. Meira »

Heit umræða um hjálmaskyldu

Þessi hjólreiðamaður sá ekki ástæðu til að nota hjálm.
Í gær, 21:42 Evrópusamband hjólreiðamanna leggst gegn hjálmaskyldu og segir að hún dragi úr hjólreiðum og að með henni sé ranglega gefið í skyn að hjólreiðar séu hættulegar. Allt eins mætti skylda gangandi vegfarendur eða þá sem aka um í bílum til að vera með hjálma. Heit umræða er um málið í Evrópu. Meira »

Nafn mannsins sem féll í Hjaltadalsá

Í gær, 20:50 Maðurinn sem féll í Hjaltadalsá í Skagafirði þriðjudaginn 11. júní síðastliðinn hét Jón Ólafsson, til heimilis að Kárastöðum í Hegranesi í Skagafirði. Jón var 69 ára að aldri, fæddur 21. maí 1944. Hann var ókvæntur og barnlaus. Meira »

Keimur af gamaldags viðhorfum

Dómarar í Hæstarétti
Í gær, 20:31 „Ég er mjög undrandi á niðurstöðunni og átti alls ekki von á henni. Einnig að þeir skuli endurmeta sönnunarfærsluna með þessum hætti í stað þess að ómerkja dóminn,“ segir Margrét Gunnlaugsdóttir, réttargæslumaður ungrar konu sem kærði tvo menn fyrir nauðgun. Þeir voru sýknaðir í Hæstarétti í dag. Meira »

Selja hjólin sem gengu af

Mun fleiri hjól söfnuðust í ár en á síðasta ári.
Í gær, 21:38 Hjólasöfnun Barnaheilla - Save the Children á Íslandi gekk vonum framar og bárust 670 hjól frá því hún hófst í byrjun maí. Rúmlega 150 börn nutu góðs af söfnuninni og hafa þegar fengið afhent hjól. En þar sem hjól ganga af hefur verið ákveðið að selja þau á sanngjörnu verði. Meira »

Hætti við kynleiðréttingu

Halldóra Theódórsdóttir hætti við kynleiðréttingu í miðju ferli.
Í gær, 20:47 „Ég iðrast þess ef þetta verður til þess að einhverjir horfi á mig og noti það kannski til að efast um annað transfólk,“ segir Halldóra Theódórsdóttir. Hún hóf kynleiðréttingu fyrir nokkru en hætti við síðastliðið haust. Meira »

Forseti ÍSÍ bráðkvaddur

Ólafur Eðvarð Rafnsson.
Í gær, 19:58 Ólafur Eðvarð Rafnsson, forseti Íþrótta- og ólympíusambands Íslands og forseti FIBA Europe, er látinn fimmtugur að aldri en hann var bráðkvaddur í Sviss fyrr í dag þar sem hann sótti fund miðstjórnar FIBA World. Meira »
Góð heilsa er ekki öllum gefin !.
Græðir magasár, vinnur gegn magabólgum, liðagigt, liðhrörnun, síþreitu og gigtve...
LEXUS LS-430 2003
Glæsilegur Lexus LS430 President til sölu. Bíllinn er bókstaflega hlaðinn búnaði...
Póstkort - Póstkort
Langar þig í raunverulegt póstkort sent frá útlöndum? Skoðaðu www.postcrossing....
Langtímaleiga í Ártúnsholti
Háskólamenntuð hjón með tvo drengi óska eftir 4 herb. íbúð til leigu í Ártúnshol...
 
Til sölu eru 3 lítið notaðir kæliturnar

             ...
Útboð tæming rotþróa

Útboð Sveitarfélagið Borgarbyggð óska...
Sérkennari, textílkennari og kennarar í almenna kennslu
Grunn-/framhaldsskóla
Laus störf við Grunnskóla Hornafj...
Grunnskólakennarar
Grunn-/framhaldsskóla
Grunnskólinní Borgarnesi Grunnskólaken...