Kristin gildi ráði við lagasetningu
Sjálfstæðismenn vilja að öll lagasetning á Íslandi taki mið af kristnum gildum og hefðum. mbl.is/Ómar Óskarsson
Öll lagasetning á Íslandi skal ávallt taka mið af kristnum gildum og hefðum þegar það á við, samkvæmt ályktun sem samþykkt var á landsfundi Sjálfstæðisflokksins í dag.
Í ályktuninni, sem drög voru lögð að í allsherjar- og menntamálanefnd landsfundar, segir að Sjálfstæðisflokkurinn telji að kristin gildi séu þjóðinni til góðs „nú sem aldrei fyrr“ og að hlúa beri að kirkju og trúarlífi.
„Sjálfstæðisflokkurinn vill standa vörð um þjóðkirkju Íslands samkvæmt stjórnarskrá,“ segir í ályktuninni sem samþykkt var. Jafnframt að landsfundur telji mikilvægt að ríkisvaldið standi full skil á félagsgjöldum (sóknargjöldum) þjóðkirkjunnar og annarra trúfélaga.
Óánægja meðal ungra sjálfstæðismanna
Ungir sjálfstæðismenn beittu sér fyrir því á landsfundinum í dag að ákvæði um að öll lagasetning skuli taka mið af kristnum gildum og hefðum yrði fellt út, en sú tillaga var felld naumlega og ályktunin samþykkt óbreytt.
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, formaður Heimdallar, segist á facebook síðu sinni í kvöld vera hneyksluð á því að landsfundur hafi samþykkt ályktunina í þessari mynd. „Lagasetning á aldrei að taka mið af trúarbrögðum og þingmenn eiga alltaf að vera þingmenn einstaklinga ekki trúarbragða.“
Í stjórnarskrá lýðveldisins Íslands er kveðið á um að hin evangelíska lúterska kirkja skuli vera þjóðkirkja á Íslandi og ríkisvaldið skuli styðja hana og vernda. Að öðru leyti segir um trúmál í stjórnarskránni að allir eigi rétt á að iðka trú sína í samræmi við sannfæringu hvers og eins. Allir skuli vera jafnir fyrir lögum og njóta mannréttinda án tillits til trúarbragða.
Bloggað um fréttina
-
Páll Vilhjálmsson Kristin gildi andspænis siðleysi í samfélaginu -
Friðrik Agnar Ólafsson Schram Kristin trú og siðferðisgildi -
Árni Viðar Björgvinsson Eru ekki Mannleg Gildi alveg nóg? -
Njörður Helgason Villutrúarkenning Íhaldsins. -
Börkur Hrólfsson Ha ?, er það hægt ? -
Haraldur Haraldsson Kristin gildi ráði við lagasetningu/ekkert ljótt við það,en við erum ... -
Ásgrímur Hartmannsson Nú er flokkurinn að misskilja eitthvað -
Magnús Jónsson Og þeir sem ekki ætla að kjósa ærast??? -
Steindór Sigursteinsson Ályktun Sjálfstæðisflokksins gleðiefni -
Jón Valur Jensson Samþykkt landsfundar Sjálfstæðisflokksins um kristin gildi er gleðiefni -
Elsabet Sigurðardóttir Hvað eru margar ríkiskirkjur hér á landi og hvað margir ... -
Ómar Geirsson Útburður barna er ekki kristið lífsgildi. -
Jósef Smári Ásmundsson Prestastefna? -
-
Torfi Kristján Stefánsson "þar sem það á við"! -
Jón Ingi Cæsarsson Er ekki örugglega árið 2013 ? -
Ómar Bjarki Kristjánsson Skemmtiatriði frá fundi furðuflokks Sjalla. (Video) -
Jens Guð Sharia lög og þorraþræll -
Sleggjan og Hvellurinn Góð tillaga eins langt og hún nær, meiri áhersla á ... -
Magnús Óskar Ingvarsson Kristin gildi ráði við lagasetningu -
-
Kristin stjórnmálasamtök Kristin gildi fá stuðning meirihluta á landsfundi Sjálfstæðisflokksins - nú ... -
Jón Baldur L'Orange Hér býr kristin og frjáls þjóð við ysta haf -
-
Kristinn Eysteinsson Hvað eru Kristin gildi?
Innlent »
- Færri nota frímerkin
- Barroso hlakkar til samstarfs
- Stefna á breyttan ramma í sumar
- Ekki bannað að biðja um fjárhagsupplýsingar
- Vegurinn um Kjálkafjörð opnaður
- Líkfundur á Seltjarnarnesi
- Fjórir teknir við veggjakrot
- Illugi afhjúpaði Regnbogann
- Óvíst hvenær sumarþingið hefst
- Ástand bílanna almennt gott
- Gjald á grundvelli afnota
- Andlát: Ingiríður Vilhjálmsdóttir
- Vaxandi óánægja með launakjörin
- Kaupa aftur eignirnar af Fasteign
- Magur og illa brotinn
Föstudagur, 24.5.2013
- Íbúar norðursins spennandi jaðarverur
- Leigja flugvél undir flóttafólk
- Sparkaði í andlit liggjandi manns
- Fundu 80 grömm af amfetamíni
- Ísland með forustu á NM í brids
- Milli steins og sleggju
- Krefst viðurkenningar á faðerni Jóels
- „Guð birtist mér þegar ég var 2 ára“
- Sex ekki komnir með aðstoðarmenn
- Gott að vinna hjá sérstökum saksóknara
- Skipa ráðherranefnd um úrlausnir
- Talið að kafarinn nái sér
- Köfunarslys í Silfru
- Franski ferðamaðurinn fundinn
- Útblástur barst inn í hjólhýsið
- 600 taka þátt í landsþingi Slysavarnafélagsins
- „Búið að umturna öllu“
- Eftirlit við Leifsstöð gengur vel
- Þyrlan tekur þátt í leitinni
- Börnin söfnuðu yfir 8 milljónum króna
- Sjö komust áfram í Íslandsmótinu í kotru
- Kynhneigð skiptir ekki máli í skátunum á Íslandi
- Sjö skólar sameinast um fjarnám
- Fjölgun í Landnámsdýragarinum
- Vélarvana báti komið til aðstoðar
- Fyrsti ríkisstjórnarfundurinn
- 2½ tíma seinkun vélar Icelandair
- Leit á Fimmvörðuhálsi
- Jafnréttismál á réttri leið en þó má bæta um betur
- Brennuvargs leitað
- Friðun Fríkirkjuvegar á byrjunarreit
- Þorgerður Katrín til SA
- Missti bifreiðina út í Norðurá
- Góður gangur í karfaveiðum
- Heimilt að bera fólkið út
- Ganga gegn Monsanto á Austurvelli
- Lifrarbólgufaraldur rakinn til frosinna jarðarberja
- Sviptur eftir ölvunarakstur
- Rukkuð um aukalyklana
- Ríkisstjórnarfundur klukkan 13
- Gengu í skrokk á húsráðanda
- Lyfjameðferð við Fabry gengið vel
-
Mögnuð upplifun á toppi veraldar
- Heimilisofbeldi
- Ríkisstjórn Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks
- Íslenskir Everestfarar
- Vilborg Arna og leiðangrar hennar
- Umsókn um aðild að ESB
























