Ekkert kjöt í nautakjötsböku

Víðsvegar um heiminn er nú rannsakað hvað sé eiginlega í tilbúnum réttum og kemur ýmislegt ... stækka

Víðsvegar um heiminn er nú rannsakað hvað sé eiginlega í tilbúnum réttum og kemur ýmislegt fróðlegt þar í ljós. AFP

Ekkert kjöt reyndist vera í nautaböku frá Gæðakokkum í Borgarnesi sem sögð var innihalda 30% nautahakk í fyllingu, sem átti að vera helmingur af þyngd vörunnar.

Rannsókn Matvælastofnunar á kjötinnihaldi 16 íslenskra matvara sýnir að Gæðakokkar í Borgarnesi hafa framleitt og markaðssett tvær vörur sem sagðar eru innihalda nautakjöt en niðurstöður rannsóknarinnar sýna að svo er ekki. Engin vara sem skoðuð var í rannsókninni uppfyllti allar kröfur um merkingar.

Engin vara uppfyllti kröfur um merkingar

Matvælastofnun lét nýverið rannsaka kjötinnihald 16 íslenskra matvara á markaði til að kanna hvort þær innihéldu hrossakjöt án þess að þess væri getið á umbúðum. Niðurstöður rannsóknarinnar sýndu að hrossakjöti hafði ekki verið blandað í vörurnar. Hins vegar kom í ljós að engin þessara vara uppfyllti allar kröfur um merkingar og reyndust tvær vörur ekki innihalda nautakjöt þrátt fyrir merkingar þar um.

Ekkert nautakjöt reyndist vera í nautabökunni

Ekkert nautakjöt reyndist vera í nautabökunni

Ekkert nautahakk í hakkbollum

Lambahakkbollur framleiddar af Gæðakokkum fyrir Kost og sagðar innihalda lamba- og nautakjöt innihéldu eingöngu lambakjöt. Matvælastofnun hefur vísað þessum málum til rannsóknar og ákvörðunartöku hjá þeim heilbrigðiseftirlitssvæðum sem fara með opinbert eftirlit með viðkomandi fyrirtækjum. Heilbrigðiseftirlit Vesturlands hefur þegar farið fram á innköllun á nautabökum frá Gæðakokkum og verða frekari aðgerðir vegna málsins teknar í framhaldinu.

Engin vara uppfyllti allar kröfur um merkingar, en alvarlegt er þegar neytendur geta ekki treyst því að heiti vöru gefi rétta mynd af samsetningu hennar og það sama á við þegar innihaldslýsingar eru rangar eða veita ekki fullnægjandi upplýsingar um samsetningu matvöru. Matvælastofnun og heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga munu fylgja eftir málum vegna vanmerkinga sem í ljós komu við skoðun umbúða hlutaðeigandi vörutegunda. Rétt er að taka fram að í sumum tilvikum var aðeins um minniháttar athugasemdir að ræða.

Ekkert nautakjöt reyndist vera í ítölsku kjötbollunum frá Gæðakokkum í Borgarnesi sem framleiddar voru fyrir ...

Ekkert nautakjöt reyndist vera í ítölsku kjötbollunum frá Gæðakokkum í Borgarnesi sem framleiddar voru fyrir Kost.

Kostur tekur vöruna úr sölu

Kostur í Kópavogi hefur sent frá sér tilkynningu um að nautabökurnar og ítölsku lambahakksbollurnar hafi verið teknar úr sölu og þær verði ekki til sölu í Kosti á
 meðan innihaldslýsingar veita viðskiptavinum verslunarinnar ekki rétta mynd af innihaldi og samsetningu matvaranna. 

Sjá nánar á vef Matvælastofnunar

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Íbúar norðursins spennandi jaðarverur

Kynningarmyndband Inspired by Iceland vakti athygli.
21:30 Norðrið þykir spennandi jaðarsvæði og íbúar þess spennandi jaðarverur. Þess vegna hefur ímynd norðursins til dæmis verið notuð í listsköpun og markaðsherferðum. Þetta sagði Katla Kjartansdóttir þjóðfræðingur á málstofu um Ísland og norðurslóðir sem haldin var í Háskóla Íslands í dag. Meira »

Leigja flugvél undir flóttafólk

21:28 Ríkislögreglustjóri mun leigja farþegaflugvél til að flytja fimmtíu manna hóp Króata sem leituðu hælis hér á landi. Fólkinu var synjað um hæli og er verið að birta þeim þá niðurstöðu þessa daganna. Eftir helgi stendur svo til að flytja fólkið aftur til heimalandsins, með leiguflugi. Meira »

Sparkaði í andlit liggjandi manns

Horn Laugavegar og Smiðjustígs.
21:15 Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt rétt rúmlega tvítugan pilt í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir líkamsárás. Dómurinn sagði árásina tilefnislausa og grófa en maðurinn sparkaði í andlit liggjandi manns. Honum var gert greiða fórnarlambi sínu 560 þúsund í bætur. Meira »

Fundu 80 grömm af amfetamíni

Amfetamín. Þó töluvert meira en 80 grömm.
21:08 Lögreglan á Akureyri lagði í dag hald á áttatíu grömm af amfetamíni. Málið komst upp þegar bifreið var stöðvuð í bænum en á farþega fundust fjörutíu grömm af efninu. Í kjölfarið var leitað í húsi tengdu mönnunum þar sem fjörutíu grömm til viðbótar fundust. Meira »

Milli steins og sleggju

Frá sumarstarfi kirkjugarðanna.
20:23 Formaður Stúdentaráðs segir stúdenta sem ekki fá vinnu í sumar vera milli steins og sleggju, því þeim standi hvorki til boða atvinnuleysisbætur né námslán. Stjórnarformaður atvinnutryggingasjóðs telur aðsókn í sumarátak á vegum Vinnumálastofnunar minni en í fyrra. Meira »

„Guð birtist mér þegar ég var 2 ára“

Stefán Árni og Tristan kynntust hugleiðslu fyrir 13 árum og fást bæði við hugleiðslukennslu í ...
20:00 Tristan og Stefán Árni ræða andlega vegferð sína og hugleiðslu í viðtali við Sunnudagsblaðið.  Meira »

Ísland með forustu á NM í brids

Íslenska landsliðið í opnum flokki á Norðurlandamótinu í brids.
21:01 Ísland er með forustu í opnum flokki á Norðurlandamótinu í brids, sem nú fer fram á Hótel Keflavík í Reykjanesbæ. Í kvennaflokki er Ísland hins vegar í fjórða og neðsta sæti. Meira »

Krefst viðurkenningar á faðerni

Jóel Færseth Einarsson tveggja mánaða.
20:05 Mál Jóels Færseth Einarssonar, sem fæddist hjónunum Einari Þór Færseth og eiginkonu hans Helgu Sveinsdóttur með aðstoð indverskrar staðgöngumóður, er komið fyrir íslenska dómstóla. Ástæðan er sú að Einar Þór þarf að fá viðurkenningu dómstóla á því að hann sé raunverulega faðir Jóels. Meira »

Sex ekki komnir með aðstoðarmenn

18:22 Flestir ráðherra í nýrri ríkisstjórn Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins hafa ekki valið sér aðstoðarmenn. Þrír ráðherrar eru komnir með aðstoðarmenn en hinir sex hafa hins vegar ekki gengið frá þeim málum. Meira »

Gott að vinna hjá sérstökum saksóknara

Sérstakur saksóknari.
18:21 Embætti sérstaks saksóknara er stofnun ársins í flokki stórra stofnana með fleiri en 50 starfsmenn. Þetta þriðja árið í röð sem embættið hlýtur þessa nafnbót. Johan Rönning var svo valið Fyrirtæki ársins í hópi stærri fyrirtækja þar sem starfsmenn eru að lágmarki fimmtíu og er þetta annað árið í röð sem Rönning sigrar í þessum stærðarflokki. Meira »

Skipa ráðherranefnd um úrlausnir

Ný ríkisstjórn kom saman á fundi í Stjórnarráðinu í dag
18:11 Ríkisstjórn Íslands undir forsæti Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar ákvað á fyrsta fundi sínum í dag að skipuð verði ráðherranefnd um úrlausnir í skuldamálum heimilanna. Markmiðið er að ná fram leiðréttingu vegna verðbólguskots áranna 2007–2010 en til þess megi beita bæði beinni niðurfærslu höfuðstóls og skattalegum aðgerðum. Meira »

Talið að kafarinn nái sér

Silfra.
17:54 Kafarinn sem lenti í vandræðum í Silfru á Þingvöllum fyrr í dag er við betri heilsu en á horfðist og talið er að hann nái sér að fullu. Stuttan tíma tók að koma honum í land og að sjúkrabíl og er hann á leið á Landspítalann. Meira »

Köfunarslys í Silfru

Silfra.
17:24 Björgunarsveitin Ingunn var á sjötta tímanum í dag kölluð út vegna köfunarslyss í Silfru á Þingvöllum. Maðurinn var meðvitundarlítill en er farinn að anda. Hann verður fluttur á sjúkrahús í skyndi. Meira »

Útblástur barst inn í hjólhýsið

Þjórsárdalur.
16:38 Bráðabirgðaniðurstöður rannsóknar vegna andláts hjóna í hjólhýsi þeirra í Þjórsárdal eru þær að samsetning á reykröri við gasofn var í sundur sem leiddi til þess að að útblástursloft barst inn í hjólhýsið frá útblæstri kyndingarinnar í stað þess að fara út um reykháf. Meira »

„Búið að umturna öllu“

Búið er að umturna öllu í húsinu.
16:04 „Innandyra var búið að umturna öllu. Búið var að velta borðum, velta og skemma ísskáp, hrinda örbylgjuofni ofan af borði, skemma hraðsuðuketil, eyðileggja kaffikönnu, eyðileggja brauðrist, kasta mjólkurfernu í gólfið, smyrja smjöri á innanstokksmuni og dreifa grænmeti um allan skálann.“ Meira »

Franski ferðamaðurinn fundinn

Björgunarsveitarmenn á Fimmvörðuhálsi.
16:57 Franski ferðamaðurinn sem leitað var að á Fimmvörðuhálsi fannst á fimmta tímanum í dag. Hann hafði farið út af gönguleiðinni og ekki ratað inn á hana aftur. Maðurinn var ágætlega á sig kominn þrátt fyrir að vera þreyttur eftir gönguna. Honum verður gefin hressing og gengið með hann niður. Meira »

600 taka þátt í landsþingi Slysavarnafélagsins

Frá landsþingi Slysavarnafélagsins Landsbjörgu
16:05 Landsþing Slysavarnafélagsins Landsbjargar fer nú fram á Akureyri. Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson ávarpaði þingið og kom meðal annars inn á gildi Slysavarnarfélagsins Landsbjargar í íslensku samfélagi og hversu öflugt sameiningartákn félagið er þegar á reynir. Meira »

Eftirlit við Leifsstöð gengur vel

Allt stopp vegna skoðunar bílaleigubíla.
16:00 Nokkrar tafir hafa verið á umferð frá Leifsstöð í dag vegna sérstaks eftirlits með ástandi bílaleigubíla. Að sögn lögreglunnar á Suðurnesjum hafa þó engar kvartanir borist og eftirlitið gengið mjög vel. Ætlunin er að kanna öryggi bílaleigubíla með hliðsjón af þeim reglum sem almennt gilda um skoðunarhæfi bifreiða. Meira »
Listaverk
Eftir Kristínu Birgisdóttur 55*70. Upplýsingar í s. 8966653 og steinunnbirgis@h...
Glæsileg Matarstell frá Mikasa til sölu Brúkauplisti
Glæsileg Matarstell og Kafe stell frá Mikasa Culture Platinum er glæsilegt stell...
BENZ SPRINTER 316 CDI
Sjálfskiptur. Klæddur að innan. Árgerð 2003 og ekinn 252.000km. Nánari upplýsing...
INNIHURÐIR
EIK INNIHURÐIR . SM.6633899...
 
Sýslumaðurinn í reykjavík- framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Varmadælur - skaftárhreppur

Tilboð óskast í varmadælur fyrir Skaf...
Senior manager
Sérfræðistörf
NORDIC INVESTMENT BANK (NIB) is an inter...
Rafmagns- verk- eða tæknifræðingur
Sérfræðistörf
RAFMAGNS- VERK- EÐA TÆKNIFRÆÐINGUR V...