Ísland miðstöð vöruflutninga og flugs á Norðurslóðum

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands.
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands. mbl.is/Sigurgeir Sigurðsson

Ísland er óðum að verða miðstöð vöruflutninga flugs á Norðurslóðum í krafti reglulegra siglinga íslenskra skipafélaga og áætlunarflugs Icelandair. Þetta kom fram í ræðu Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands, á ráðstefnu Fransk-íslenska viðskiptaráðsins í París samkvæmt fréttatilkynningu frá forsetaembættinu.

Forsetinn benti þar á að Eimskip og Samskip væru nú þegar helstu skipafélögin sem flytja vörur til og frá norðurhéruðum Bandaríkjanna og Kanada, Grænlandi, Færeyjum, Noregi og Rússlandi og að Ísland væri þjónustumiðstöð fyrir þessa víðtæku flutninga. Þegar Icelandair hæfi síðan áætlunarflug til Anchorage í Alaska og Pétursborgar í Rússlandi í vor yrði flugfélagið hið fyrsta í veröldinni sem sinni reglulegu áætlunarflugi til allra landa á Norðurslóðum.

„Þessi nýja staða skapi Íslandi fjölda tækifæra í ljósi hinnar hröðu þróunar vaxandi umsvifa, framkvæmda og ferðamennsku á Norðurslóðum. Með tengingum íslenskra skipafélaga við hafnir í Evrópu og reglulegu áætlunarflugi Icelandair til Parísar væri Ísland hagkvæmasta miðstöðin fyrir tengsl Frakka við Norðurslóðir, svo sem vöruflutninga og ferðaþjónustu, en vaxandi áhugi franskra stjórnvalda á Norðurslóðum hefur komið skýrt fram í heimsókn forseta Íslands til Frakklands undanfarna daga,“ segir ennfremur í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert