Álag og lág laun almennra lækna

Morgunblaðið Þórunn Kristjánsdóttir thorunn@mbl.is

Fjórðungur almennra lækna sagði upp störfum á Landspítalanum um síðustu mánaðamót. Uppsagnir þessara 25 lækna taka gildi 1. apríl næstkomandi. Læknarnir starfa á kvenna- og lyflækningasviði. Hver og einn hefur sagt upp störfum á sínum forsendum. Um 100 almennir læknar starfa við spítalann.

Uppsagnarfresturinn er mánuður því ríkjandi kjarasamningur við almenna lækna er gerður til eins árs í senn. Kjarasamningurinn sem er í gildi er lágmarkssamningur, sá er ekki stofnanasamningur líkt og hjúkrunarfræðingar eru með. Samningar eru ekki lausir.

Læknarnir, sem hafa sagt upp störfum, hafa nú margir hverjir átt fundi með yfirlækni sinnar deildar til að fara yfir ástæður uppsagnanna. „Talsvert er um ábendingar um að starfsaðstöðu sé ábótavant,“ segir Erna Einarsdóttir, starfsmannastjóri Landspítalans.

„Ég tel ekki rétt að tjá mig að svo stöddu. Ég á enn eftir að hitta stjórnendur og sjá hvort og hvað þeir vilja bjóða,“ segir Ingibjörg Kristjánsdóttir, almennur læknir, sem starfar á lyflækningasviði. Hún segist standa við uppsögnina ef til þess kemur.

Ekki í samningsstöðu

„Við erum ekki í neinni samningsstöðu og gerum okkur grein fyrir því,“ segir Ómar Sigurvin Gunnarsson, formaður Félags almennra lækna.

Launakjörin og álagið eru það tvennt sem Ómar Sigurvin tínir til að sé helsta ástæðan fyrir uppsögnunum. Þá segir hann óánægju ríkja með fyrirkomulagið í starfinu sem lýsir sér með þeim hætti að læknum er ekki kleift að klára að sinna ýmsum verkefnum, þau ýmist bíði til morguns eða læknarnir vinni yfirvinnu sem þeir fái ekki greidda.

„Fólk er orðið langvarandi þreytt og getur ekki unnið við óbreyttar aðstæður,“ segir Ómar Sigurvin.

Hann er búinn að gera sínum yfirmönnum ljóst hvers vegna hann sagði upp, sem er fyrst og fremst vegna óánægju með launakjör. „Mér finnst, eins og mörgum öðrum, að maður fái ekki borgað í samræmi við álagið í starfi,“ segir Ómar Sigurvin.

Sjálfur er hann í sérnámi í fæðingu og kvensjúkdómum. Í sínu námi á hann eftir að vinna tiltekna vinnutíma á spítalanum, til að fá sérfræðiréttindin. „Þetta setur að sjálfsögðu þau plön í uppnám. Engu að síður er það þannig að ég vil fá borgað eins og mér þykir boðlegt,“ segir Ómar Sigurvin. Laun almennra lækna hafa dregist aftur úr launum annarra háskólamenntaðra starfsmanna ríkisins, en laun þeirra hafa hækkað um 8,4–8,7% frá árinu 2007. Ómar Sigurvin bendir á að þessi þróun sé ekki í takt við aðrar stéttir. „Ég hef átt jákvæðar samræður við mína yfirmenn og hef fulla trú á að þetta leysist,“ segir hann.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Gjaldtaka við komu og brottför

„Þeir staðir sem nú þegar liggja undir gríðarlegu álagi geta ekki beðið eftir framlagi úr ...
15:51 „Með breiðum flötum gjaldstofni er verið að segja að Ísland sé land náttúrufegurðar. Allir sem koma til og frá landinu eiga að varðveita það,“ segir Ólafur Örn Haraldsson, forseti Ferðafélags Íslands, en félagið samþykkti í gær bókun þar sem afstaða er tekin til gjaldtöku á vinsæla ferðamannastaði. Meira »

Skuldarar fá leiðréttingu

Frosti Sigurjónsson.
15:44 „Þetta á ekki að trufla fasteignamarkaðinn. Mikilvægt er að fram komi að þeir sem hafa orðið fyrir ófyrirséðri höfuðstólsbreytingu vegna hrunsins fá leiðréttingu,“ segir Frosti Sigurjónsson, formaður efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis. Meira »

Ráðherrar ræddu skattamál og ESB

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Frederik Reinfeldt á fundi með blaðamönnum í dag.
15:34 Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra, gerði forsætisráðherra Svíþjóðar, Frederik Reinfeldt, grein fyrir áherslum nýrrar ríkisstjórnar varðandi efnahagsmál, m.a. einföldun skattkerfis og úrræða fyrir skuldsett heimili á fundi þeirra í Stokkhólmi. Meira »

„Mjög dapurlegur dagur“

Mótmælendur í Hvalfirði er fyrsta langreyðurin kom á land í gær.
15:27 „Þetta er mjög dapurlegur dagur,“ segir Robbie Marsland, hjá Alþjóða dýraverndunarsjóðnum, IFAW, um þær fréttir að fyrstu langreyðarnar hafi nú verið veiddar við Íslandsstrendur. Meira »

Bótaskylt vegna Inspired by Iceland

15:10 Íslenska ríkið var í dag dæmt til að greiða auglýsingastofunni J&L ehf. rúmar fimm milljónir í skaðabætur vegna þátttöku auglýsingastofunnar í Inspired by Iceland-verkefninu. Meira »

Sýknaðir af nauðgun í Hæstarétti

13:57 Hæstiréttur sýknaði í dag tvo karlmenn sem Héraðsdómur Reykjavíkur sakfelldi fyrir nauðgun í ársbyrjun. Niðurstaða héraðsdóms er gagnrýnd og segir í dómi Hæstaréttar að ákæruvaldinu hafi mistekist að sanna sekt mannanna. Fimm dómarar Hæstaréttar dæmdu í málinu en einn þeirra skilaði sératkvæði. Meira »

Forsætisráðherra spurður út í Snowden

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra sést hér ræða við blaðamenn ásamt Fredrik Reinfeldt, forsætisráðherra Svíþjóðar, í ...
15:19 Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra segir í samtali við AFP-fréttastofuna að aðstoðarmaður bandaríska uppljóstrarans Edwards Snowden hafi átt í óformlegum viðræðum við íslenska embættismenn. Líkt og fram hefur komið hefur Snowden lýst áhuga á að sækja eftir pólitísku hæli á Íslandi. Meira »

Tölvuþrjótar herja á viðskiptavini Íslandsbanka

14:07 Nokkrir viðskiptavinir Íslandsbanka hafa í morgun fengið póst þar sem þeir eru beðnir um að staðfesta notendaupplýsingar með því að tengjast netbanka í gegnum þá vefslóð sem gefin er upp í póstinum. Efni póstsins (subject) er: „Staðfesting... reiknings Alerts“. Meira »

Rannsóknarnefnd skoðar vél Ómars

Flugvél Ómars flatmagar við Sultartangalón
13:54 „Þegar ég kom að þessu með myndavél þá var þyrlan búin að krækja í vélina,“ segir Aron Steinn Guðmundsson, starfsmaður Ístaks við Búðarhálsvirkjun, en hann tók myndir af því í dag þegar þyrla Landhelgisgæslunnar flutti flugvél Ómars Ragnarssonar, sem brotlenti við Sultartangalón á þjóðhátíðardag. Meira »

200 taka þátt í WOW Cyclothon-keppninni

Frá WOW Cyclothon árið 2012.
13:52 Um 200 manns eru skráðir til leiks í WOW Cyclothon hjólreiðakeppnin sem hefst í dag kl. 18. Samtals verða hjólaðir 1.332 kílómetrar á innan við 72 klukkustundum. Meira »

Svavar og RÚV kæra til Mannréttindadómstóls

Svavar Halldórsson.
13:45 Svavar Halldórsson og Ríkisútvarpið hafa sameiginlega ákveðið að una ekki dómi Hæstaréttar í máli Jóns Ásgeirs Jóhannessonar gegn Svavari, sem féll í nóvember. Niðurstaða Hæstaréttar hefur því verið kærð til Mannréttindadómstóls Evrópu. Meira »

Sáttaumræður í fjárlaganefnd

Vigdís Hauksdóttir, formaður fjárlaganefndar.
13:19 „Þörf var á formlegri sáttaumræðu milli fjárlaganefndar og Ríkisendurskoðunar eftir síðasta þing,“ sagði Vigdís Hauksdóttur, formaður fjárlaganefndar í samtali við mbl.is í dag, en fundur fór fram í nefndinni í morgun þar sem samskipti nefndarinnar við Ríkisendurskoðun á síðasta þingi voru ofarlega á baugi. Meira »

Ódýrara að nota farsímann innan Evrópu

13:12 1. júlí lækkar verð á notkun farsíma/netlykla milli landa innan Evrópu samkvæmt reglugerð ESB um verðþök á notkun farsíma og netlykla innan sambandsins. Meira »

Virkt hraðaeftirlit fækkar slysum

12:45 165 ökumenn hafa verið stöðvaðir fyrir of hraðan akstur í umdæmi lögreglunnar á Hvolsvelli það sem af er júnímánuði, að sögn Guðmundar Inga Ingasonar varðstjóra. Erlendur ferðamaður á Mýrdalssandi mældist í gær á hraðanum 159 km/klst. og var hann sviptur ökuréttindum í tvo mánuði og gert að greiða 140 þúsund í sekt. Meira »

Handtekinn með hafnaboltakylfu

Héraðsdómur Reykjavíkur. Úr myndasafni.
12:10 Karlmaður á þrítugsaldri hefur verið ákærður fyrir að hafa á árunum 2012 og 2013 ekið ítrekað ekið undir áhrifum fíkniefna. Málið var dómtekið í Héraðsdómi Reykjavíkur en maðurinn hefur ítrekað komið sögu lögreglunnar. Meira »

Voldugar Sækýr synda Ermarsund

Sækýrnar. Kristín Helgadóttir, Sigrún Þuríður Geirsdótir, Birna Hrönn Sigurjónsdóttir, Ragnheiður Valgarðsdóttir, Anna Guðrún Jónsdóttir og ...
12:53 „Sjórinn hefur verið að kalla meira og meira á okkur og finnum við sífellt stærri verkefni,“ segir Ragnheiður Valgarðsdóttir, sundskona úr hópnum Sækýrnar. Hópurinn hyggst þreyta boðsund yfir Ermarsundið. Nái hópurinn markmiði sínu verða þær fyrsti íslenski kvennaboðsundshópurinn sem lýkur áfanganum Meira »

Síbrotamaður dæmdur í níu mánaða fangelsi

Maðurinn hefur sautján sinnum verið dæmdur fyrir brot gegn almennum hegningarlögum, umferðarlögum og lögum um ...
12:27 Karlmaður á fertugsaldri var í Héraðsdómi Reykjavíkur dæmdur í níu mánaða fangelsi fyrir að hafa stolið matvöru, fatnaði og snyrtivörum á nokkurra mánaða tímabili í vetur. Maðurinn hefur hlotið 17 dóma frá árinu 1998 er hann var tvítugur. Meira »

„Ég kem með baseballkylfu í bankann“

Héraðsdómur Vestfjarða
11:49 „[...] þú getur sagt... skilað til þeirra... Ég kem með baseballkylfu í bankann og brýt eitthvað og bramla núna mjög fljótlega ef það verður ekki löguð heimildin innan tveggja mínútna. [...]“ Þetta kemur fram í ákæru yfir manni sem hótaði starfsfólki Arion banka í Borgarnesi fyrir tveimur árum. Meira »
LINCOLN NAVIGATOR 4/2005
Lincoln Navigator 4/2005 ekinn 110 þ. km. Flottur 7 manna lúxus b...
Skemmtibátur
Bayliner 265 '07 27' 260 ha Mercury gengur 36 m. Svefnpláss fyrir 4, salerni...
Combi-Camp Venize ´04 m/svefnkálfi.
Aðal svefnrýmið er með Queen rúmgrind sem er þvert á vagninn og þar undir er 245...
SKEMMTILEGT ATVINNUTÆKIFÆRI
Til sölu verslun með fatnað, fylgihluti og skartgripi í góðu húsnæði í verslanam...
 
Samkoman fellur inní sumarmót - kristniboðssambandsins
Félagsstarf
Safnaðarheimili Grensáskirkju Sunnu...
Sýslumaðurinn í reykjavík - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Aðstoðarskólastjóri
Grunn-/framhaldsskóla
Vantar aðstoðar- skólastjóra í Grunn...
Upplýsingafulltrúi
Augl-/almannatengsl
Upplýsingafulltrúi Helstu verkefni:...