Dularfullt fyrirbæri á himni

Dularfullt fyrirbæri á morgunhimninum
Dularfullt fyrirbæri á morgunhimninum Ljósmynd/Bolli Valgarðsson

Dularfullt fyrirbæri á himninum vakti athygli íbúa á höfuðborgarsvæðinu í dag. Að sögn Kristínar Hermannsdóttur veðurfræðings er þetta flugslóði eftir þotu sem tók í þetta skipti á sig óvenjulega mynd.

Hún segir að þegar mjög hvasst er í háloftunum, líkt og nú er yfir Íslandi, tætist slóðarnir sem myndast mjög fljótt upp og þar af leiðandi fái þeir þetta form. „Í þessu tilviki hefur vindurinn beygt og sveigt flugslóðann þannig að hann líkist frekar ormi en þotuslóða,“ segir Kristín.


 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert