Bíllinn gjörónýtur - vitna leitað

Mynd 1 af 2
Hér má sjá myndir af skemmdunum sem unnar voru á bílnum.

Eigandi bíls sem kveikt var í í nótt með því að setja logandi flugeld inn í hann, segist nú hafa fengið þær ömurlegu fréttir að bíllinn sé gjörónýtur.

Bíllinn rann til í hálku og hávaðaroki í gærmorgun og festist upp á steyptum kanti við Húsaskóla í Grafarvogi. Þetta vakti athygli ljósmyndara sem voru á ferð í óveðrinu í gær og voru myndir af bílnum birtar í mörgum fjölmiðlum í gær. Eigandinn hafði ætlað að sækja bílinn í dag en í morgun fékk hann símtal frá lögreglunni sem sagði að bíllinn hefði verið dreginn í burtu enda hefði hann stórskemmst í eldi í nótt.

Samkvæmt upplýsingum lögreglunnar var logandi flugeldum komið fyrir í bílnum í nótt og þannig kveikt í honum. Vegfarandi slökkti eldinn með duftslökkvitæki og lögreglan lét svo draga bílinn burt.

Eigandi bílsins sem er stúlka um tvítugt, segist miður sín, enda hafi bíllinn ekki verið kaskótryggður og mun því tjónið allt lenda á henni, ef ekki tekst að hafa hendur í hári þess eða þeirra sem eyðilögðu hann.

Þeir sem geta gefið upplýsingar um atvikið sem átti sér stað um kl. 01.50 í nótt er bent á að hafa samband við lögregluna í síma 444-1100.

Í tilkynningu frá lögreglunni segir að leitað sé vitna vegna rannsóknar á bílbrunanum.

„Þar kviknaði í ljósgrænum Renault Megane Scenic, en vegfarandi náði að slökkva eldinn. Grunur leikur á að kveikt hafi verið í bílnum. Þeir sem geta veitt upplýsingar um málið eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögregluna í síma 444-1000. Upplýsingum má einnig koma á framfæri í tölvupósti á netfangið abending@lrh.is,“ segir í tilkynningu lögreglunnar.

Sjá frétt mbl.is: Kveikt í föstum bíl með flugeldum

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

19. júní á rafrænu formi

19. júní ársrit Kvenréttindafélags Íslands.
Í gær, 23:57 Ársrit Kvenréttindafélags Íslands, 19. júní, kom út í dag að vanda en það er með elstu tímaritum hér á landi og kom fyrst út árið 1951. Að þessu sinni varð hins vegar sú breyting á að tímaritið kom út á rafrænu formi en ekki sem hefðbundið blað. Meira »

Safna fyrir útför ungs drengs

Hólskirkja í Bolungarvík.
Í gær, 23:42 „Sagt er að það þurfi heilt bæjarfélag til að ala upp barn. Öll börn okkar litla samfélags eru á einn eða annan hátt, okkar börn. Nú höfum við orðið fyrir þeim hræðilega harmleik að þurfa að sjá á eftir einum okkar dýrmæta syni, Ísaki Inga Guðbjartssyni sem lést í liðinni viku.“ Meira »

Blómsveigur á leiði Bríetar

Blómsveigur lagður á leiði Bríetar Bjarnhéðinsdóttur í dag.
Í gær, 22:49 Kvenréttindafélag Íslands lagði blómsveig að leiði baráttukonunnar Bríetar Bjarnhéðinsdóttur í dag í tilefni af kvenréttindadeginum. Gengið var fylktu liði frá Ráðhúsi Reykjavíkur að leiði Bríetar í Hólavallakirkjugarði þar sem flutt voru ávörp og flutt tónlistaratriði. Meira »

„Sumarið er komið fyrir löngu“

Kristín Hermannsdóttir er hætt sem veðurfræðingur
Í gær, 22:45 „Sumarið er komið fyrir löngu,“ segir Kristín Hermannsdóttir veðurfræðingur en margir landsmenn hafa látið veðrið trufla sig að undanförnu og lögreglan á Suðurnesjum lýsti eftir sumrinu um helgina. Meira »

Heyskapur víða að komast í gang

Í gær, 22:17 Bændur huga margir að heyskap um þessar mundir en ástand túna er æði misjafnt eins og komið hefur fram undanfarið.  Meira »

Heit umræða um hjálmaskyldu

Þessi hjólreiðamaður sá ekki ástæðu til að nota hjálm.
Í gær, 21:42 Evrópusamband hjólreiðamanna leggst gegn hjálmaskyldu og segir að hún dragi úr hjólreiðum og að með henni sé ranglega gefið í skyn að hjólreiðar séu hættulegar. Allt eins mætti skylda gangandi vegfarendur eða þá sem aka um í bílum til að vera með hjálma. Heit umræða er um málið í Evrópu. Meira »

Kvennamessa við Þvottalaugarnar

Frá Kvennamessunni í dag.
Í gær, 22:31 Kvennakirkjan stóð fyrir árlegri Kvennamessu við Þvottalaugarnar í Laugardal í kvöld í tilefni af kvenréttindadeginum í samvinnu við Kvenréttindafélag Íslands og Kvenfélagasamband Íslands. Meira »

Sigmundur lét skila bíl Jóhönnu

Jóhanna Sigurðardóttir í Benz bifreiðinni á Bessastöðum.
Í gær, 21:55 Forsætisráðuneytið hefur skilað ráðherrabíl sem Jóhanna Sigurðardóttir, fyrrverandi forsætisráðherra, lét panta skömmu áður en hún lét af embætti. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra, ekur því um á bifreið sem keypt var í forsætisráðherratíð Halldórs Ásgrímssonar, árið 2004. Meira »

Selja hjólin sem gengu af

Mun fleiri hjól söfnuðust í ár en á síðasta ári.
Í gær, 21:38 Hjólasöfnun Barnaheilla - Save the Children á Íslandi gekk vonum framar og bárust 670 hjól frá því hún hófst í byrjun maí. Rúmlega 150 börn nutu góðs af söfnuninni og hafa þegar fengið afhent hjól. En þar sem hjól ganga af hefur verið ákveðið að selja þau á sanngjörnu verði. Meira »

Nafn mannsins sem féll í Hjaltadalsá

Í gær, 20:50 Maðurinn sem féll í Hjaltadalsá í Skagafirði þriðjudaginn 11. júní síðastliðinn hét Jón Ólafsson, til heimilis að Kárastöðum í Hegranesi í Skagafirði. Jón var 69 ára að aldri, fæddur 21. maí 1944. Hann var ókvæntur og barnlaus. Meira »

Hætti við kynleiðréttingu

Halldóra Theódórsdóttir hætti við kynleiðréttingu í miðju ferli.
Í gær, 20:47 „Ég iðrast þess ef þetta verður til þess að einhverjir horfi á mig og noti það kannski til að efast um annað transfólk,“ segir Halldóra Theódórsdóttir. Hún hóf kynleiðréttingu fyrir nokkru en hætti við síðastliðið haust. Meira »

Keimur af gamaldags viðhorfum

Dómarar í Hæstarétti
Í gær, 20:31 „Ég er mjög undrandi á niðurstöðunni og átti alls ekki von á henni. Einnig að þeir skuli endurmeta sönnunarfærsluna með þessum hætti í stað þess að ómerkja dóminn,“ segir Margrét Gunnlaugsdóttir, réttargæslumaður ungrar konu sem kærði tvo menn fyrir nauðgun. Þeir voru sýknaðir í Hæstarétti í dag. Meira »

Forseti ÍSÍ bráðkvaddur

Ólafur Eðvarð Rafnsson.
Í gær, 19:58 Ólafur Eðvarð Rafnsson, forseti Íþrótta- og ólympíusambands Íslands og forseti FIBA Europe, er látinn fimmtugur að aldri en hann var bráðkvaddur í Sviss fyrr í dag þar sem hann sótti fund miðstjórnar FIBA World. Meira »

Guðni Páll hefur safnað 4 milljónum myndskeið

kajagnarr
Í gær, 18:20 Hópur fólks hélt í Ráðhús Reykjavíkur í dag til að vekja athygli á verkefni Guðna Páls Viktorssonar sem fer nú umhverfis landið á kajak til styrktar Samhjálp. Jón Gnarr borgarstjóri tók á móti hópnum en Guðni Páll hefur safnað tæpum fjórum milljónum til þessa en betur má ef duga skal. Meira »

Takmörkunum á neyslu vatns aflétt

Í gær, 18:07 Takmörkunum sem voru á neyslu vatns úr Garðsvíkurvatnsbóli Svalbarðsstrandarveitu í Svalbarðsstrandarhreppi án þess að það væri fyrst soðið hefur verið aflétt samkvæmt tilkynningu frá Norðurorku. Meira »

200 hjóla í WOW Cyclothon myndskeið

wow_mbl
Í gær, 18:32 Hjólreiðakeppnin WOW Cyclothon hófst við tónlistar- og ráðstefnuhúsið Hörpu klukkan 18.00 í dag en í keppninni, sem er alþjóðleg, er hjólað hringinn í kringum Ísland í boðsveitum. Þetta er annað árið í röð sem keppnin fer fram. Meira »

Enginn með allar tölur réttar

Í gær, 18:18 Enginn reyndist með allar tölurnar réttar í Víkingalottói kvöldsins en fyrsti vinningur var að þessu sinni 532.407.220 krónur Enginn hlaut heldur annan vinning, fimm af sex tölum réttar auk bónustölu. Meira »

Stelpur forrituðu á kvenréttindadaginn

Í gær, 17:31 „Stelpurnar eru snillingar og standa sig ótrúlega vel,“ segir Erla María Tölgyes, starfsmaður Skema. Í dag sóttu 20 stelpur á aldrinum 10 til 13 ára forritunarnámskeið á vegum fyrirtækisins þar sem þær lærðu meðal annars að forrita tölvuleiki. Námskeiðið fór fram í Háskólanum í Reykjavík. Meira »
Timberland gönguskór barna 33 goretex
Til sölu Timberland goretex gönguskór barna í stærð 33. Frábærir skór, léttir og...
Húsbíll til sölu.
Til sölu Ford Transit 2005 með ítölsku BluCamp húsi, góður fjölskyldubíll, hjóla...
Bókaðu rástíma í USA & Canada
Ertu að fara til Bandaríkjanna eða Canada og vilt spila golf ? Erum með yfir 600...
Toyota Avensis Wagon 1999
Árgerð 1999. Ekinn 142 þ. km. Nýskráður 6 / 1999. Næsta skoðun 2013. Verð 650.00...
 
13059 - strætó

Útboð Reykja vík ur borg Inn kaupade...
Sýslumaðurinn í reykjavík - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Research lawyer
Sérfræðistörf
RESEARCH LAWYER The EFTA Court in Lux...
Fráveitulagnir í árgili

A B Útboð 1 1 Orkuveita Húsavík...