Íslensk kúabú setja nýtt heimsmet

Íslensk kúabú settu heimsmet árið 2011 þegar hlutfall mjólkur frá mjaltaþjónabúum nam alls 28,2% af heildarinnvigtun til afurðastöðva á landinu öllu. Þetta ár nam innvigtun mjólkur frá mjaltaþjónabúum 35,2 milljónum lítra. Á síðasta ári var magnið enn meira eða 37,2 milljónir lítra og var hlutfall mjólkur frá mjaltþjónabúum af heildarinnvigtun þá 29,7% sem er jafnframt nýtt heimsmet.

Ekkert annað land í heiminum kemur nálægt Íslandi á þessu sviði, en næst á eftir eru þó dönsk kúabú með um 26-27% mjólkurinnar frá mjaltaþjónabúum, að því er fram kemur á vef Landsambands kúabænda.

Nú liggur fyrir uppgjör ársins 2012 um mjólkurframleiðslu kúabúa með mjaltaþjóna hér á landi. Alls voru um áramótin 105 kúabú með mjaltaþjóna en árið 2011 voru þetta 101 kúabú og er það aukning um 4% á milli ára.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert