Létu ekki ófæran eyðifjörð stöðva sig

Félagarnir Daníel Pétur Daníelsson og Guðni Brynjólfur Ágústsson bjuggu sig vel út fyrir gönguna á ... stækka

Félagarnir Daníel Pétur Daníelsson og Guðni Brynjólfur Ágústsson bjuggu sig vel út fyrir gönguna á leikæfingu. Ljósmynd/Daníel Pétur Daníelsson

Bakaríisbíll, reiðhjól, vélsleði, fólksbíll, dráttarvél og tveir jafnfljótir.  Minna dugði ekki til að tveir Siglfirðingar og áhugaleikarar kæmust á æfingu á Ólafsfirði í óveðrinu sem gekk yfir landið. Vandræði höfuðborgarbúa við að koma sér í vinnuna í gær blikna í samanburði við ófærðina sem þeir Daníel Pétur Daníelsson og Guðni Brynjólfur Ágústsson sigruðust á.

„Við verðum enn innilokuð hér eins og áður en göngin komu, en það má alltaf redda sér. Allt fyrir leiklistina!“ segir Daníel Pétur sem lét ófærðina í Fjallabyggð ekki stoppa sig frá því að mæta á leikæfingu, enda verður frumsýnt annað kvöld.

Göngin breyttu miklu en ekki öllu

Á reiðhjólum með körfu og skíðagleraugu í Héðinsfjarðargöngum.

Á reiðhjólum með körfu og skíðagleraugu í Héðinsfjarðargöngum. Ljósmynd/Daníel Pétur Daníelsson

Um er að ræða fyrstu sameiginlegu uppsetningu leikfélags Ólafsfjarðar og leikfélags Siglufjarðar, leikritið Stöngin inn í leikstjórn Guðmunds Ólafssonar. Að sögn Daníels Péturs er þetta fyrsta skrefið í átt að sameiningu leikfélaganna tveggja, en áður en Héðinsfjarðargöng voru opnuð árið 2010 var lítill grundvöllur fyrir sameiginlegu félagsstarfi milli bæjanna.

Daníel Pétur segir göngin mikla samgöngubót en það breytir því þó ekki að stundum, eins og í gær, er samt sem áður kolófært milli bæja. Að minnsta kosti að nafninu til, en úrræðagóðir menn grípa til sinna ráða þegar mikið liggur við.

„Gengið í vinnuna dagurinn“

„Við erum tvisvar búnir að þurfa að redda okkur til að komast á leikæfingu í þessari viku. Á þriðjudaginn löbbuðum yfir Héðinsfjörðinn í brjáluðu veðri og svo beið okkar bíll í göngunum hinum megin,“ segir Daníel Pétur en þeir Guðni eru einu leikararnir Siglufjarðarmegin, en æfingar fara fram á Ólafsfirði. Í hljómsveit leikfélagsins eru líka menn frá Siglufirði og Dalvík en ekki liggur eins mikið við að þeir mæti á hverja æfingu.

Á þriðjudag fengu þeir far heim af leikæfingu með traktorsgröfu.

Á þriðjudag fengu þeir far heim af leikæfingu með traktorsgröfu. Ljósmynd/Daníel Pétur Daníelsson

Í gærkvöldi blasti aftur við að Daníel Pétur og Guðni kæmust ekki á æfingu vegna ófærðar og þótt þeir hafi grínast með „Gengið í vinnuna daginn“ á þriðjudag ákváðu þeir að róttækari aðgerða væri þörf í þetta skiptið og var hver fararskjótinn á fætur öðrum nýttur til að gera þeim ferðina auðveldari.

Drösluðu hjólunum gegnum snjóskafla

Þeir fengu lánaðan sendiferðabíl Bakarísins á Siglufirði og  keyrðu eins langt og þeir komust með reiðhjól aftan í geymslunni. Um 600 metra frá gangnamunnanum Siglufjarðarmegin var ófært og drösluðu þeir hjólunum í hundleiðinlegu veðri yfir skaflana inn í göngin þar sem þeir hjóluðu sem leið lá til Héðinsfjarðar. 

„Mér leið eins og í skandinavískri bíómynd að horfa á Guðna hjólandi, í göngunum, með skíðagleraugu, á körfuhjóli!“ segir Daníel Pétur en eins og gefur að skilja var talsvert fljótlegra að hjóla en ganga gegnum göngin, sem eru um 4 km löng, og að sjálfsögðu var engin umferð. Þegar í Héðinsfjörðinn kom beið þeirra vélsleðamaður frá Ólafsfirði sem flutti þá að næstu göngum og þar kom bíll til móts við þá sem skutlaði þeim á æfingu.

Þokkaleg spá á frumsýningardaginn

Daníel Pétur segir að eftir æfinguna hafi verið búið að skafa veginn og því gekk heimferðin ljúflega fyrir sig. Generalprufan fer fram í kvöld og á morgun, föstudag, verður Stöngin inn frumsýnt í Tjarnarborg á Ólafsfirði klukkan 20. 

Og hvernig lítur svo veðurspáin út fyrir frumsýningarkvöldið? „Ég þori eiginlega ekki að skoða hana,“ segir Daníel Pétur og hlær. „Nei, nei, ég held hún verði fín á morgun, við ættum alveg að komast þetta.“

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Vestfjarðavegur í Kjálkafirði opnaður

16:38 Vestfjarðavegur í Kjálkafirði var opnaður klukkan 16:00 í dag eftir skoðun sérfræðinga Vegagerðarinnar og verktakans Suðurverks samkvæmt tilkynningu. Veginum var lokað í fyrradag um óákveðinn tíma vegna hættu á skriðuföllum. Meira »

Forsetinn fundar með Sigmundi

Frá fundi Ólafs Ragnars Grímssonar og Sigmundar Davíð Gunnlaugssonar skömmu eftir kosningar.
16:20 Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, mun funda á morgun með Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, formanni Framsóknarflokksins, samkvæmt tilkynningu frá forsetaembættinu. Meira »

Stálu um 500 lítrum af olíu

Olíudreifing.
16:14 Óprúttnir einstaklingar stálu um 500 lítrum af olíu af flutningabifreið Olíudreifingar þar sem hún stóð í stæði við Austurveg á Selfossi aðfaranótt 15 maí síðastliðinn. Óskar lögreglan á Selfossi eftir upplýsingum frá almenningi sem gætu orðið til að upplýsa um stuldinn. Meira »

Svandís formaður þingflokks VG

Svandís Svavarsdóttir, alþingismaður.
16:13 Svandís Svavarsdóttir, þingmaður Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs, var í dag kjörin þingflokksformaður flokksins en varaformaður var kjörinn Árni Þór Sigurðsson, alþingismaður. Ritari er Lilja Rafney Magnúsdóttir, alþingismaður. Meira »

Má leggja fram gögn í Kaupþingsmáli

Sigurður Einarsson í Héraðsdómi Reykjavíkur.
16:04 Kröfu verjenda níu fyrrverandi stjórnenda og starfsmanna Kaupþings, um að sérstökum saksóknara yrði bannað að leggja fram ýmis gögn, var vísað frá með úrskurði í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Meira »

85% hjólreiðamanna nota hjálm

Úr myndasafni.
15:41 Notkun reiðhjólahjálma hefur aukist um 11% frá því í fyrra samkvæmt könnun VÍS en 85% hjólreiðamanna nota hjálm nú samanborið við 74% í fyrra. Í tengslum við átakið Hjólað í vinnuna var hjálmanotkun athuguð á fjórum mismunandi stöðum í Reykjavík. Meira »

Óskað eftir vitnum að slysi

16:04 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir vitnum að umferðarslysi sem varð rétt fyrir hálfþrjú í dag í Skipholti í Reykjavík á móts við veitingastaðinn American Style. Gangandi vegfarandi varð þar fyrir hvítum Toyota Land Cruiser. Meira »

Helgi þingflokksformaður Samfylkingarinnar

Helgi Hjörvar, alþingismaður.
15:54 Helgi Hjörvar, þingmaður Samfylkingarinnar, var kjörinn þingflokksformaður flokksins á fundi þingflokksins sem fram fór í dag. Oddný Harðardóttir, alþingismaður, var kjörin varaformaður þingflokksins og Kristján L. Möller, alþingismaður, ritari hans. Meira »

Skipulag ferðamála brýnasta verkefnið

Magnús Orri Schram, fyrrverandi þingmaður Samfylkingarinnar.
14:37 „Brýnasta verkefni nýs ráðherra atvinnumála verður skipulag ferðamála á Íslandi. Þar er ögurstund um þessar mundir - ágengni, gjaldtaka, umferð um hálendi og umhverfismál heilt yfir, eru dæmi um verkefni sem ekki geta beðið.“ Meira »

Lögreglan skoðar eldri tælingamál

Lögreglan.
14:21 Kynferðisbrotadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu rannsakar nú hvort karlmaður sem er í haldi grunaður um kynferðisbrot gegn 10 ára gamalli stelpu í síðustu viku, tengist eldri málum af sama tagi. Maðurinn kvaðst ekkert muna við yfirheyrslu á miðvikudag. Hann verður yfirheyrður aftur í vikunni. Meira »

„Óskabörn þjóðarinnar“ fá hjálma

Þessi börn úr 1. bekk Norðlingaskóla virtust vera alsæl með hjálmana góðu sem þau fengu ...
14:10 Eimskipafélag Íslands og Kiwanishreyfingin gefa öllum grunnskólabörnum sem ljúka 1. bekk grunnskóla í vor reiðhjólahjálma. Verkefnið, sem ber heitið „Óskabörn þjóðarinnar“ er árviss viðburður félaganna til að stuðla að umferðaröryggi yngstu hjólreiðarmanna landsins. Meira »

Mataræði eiginmannsins lögreglumál

Óhóflegt pizzuát varð tilefni til lögregluútkalls á Suðurnesjum.
13:53 Lögreglan á Suðurnesjum var nýverið kvödd að heimili í umdæminu vegna hjónadeilna. Deiluefnið var mataræði mannsins og var það langþreytt eiginkonan sem óskaði eftir því að lögreglan gripi inn í. Meira »

Lögreglan óskar eftir vitnum

Blár Nissan Primera og hvítur Mercedes Benz rákust saman gatnamótum Suðurlandsbrautar og Grensásvegar 12. maí ...
13:53 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir vitnum að umferðaróhappi sem varð á gatnamótum Suðurlandsbrautar og Grensásvegar í Reykjavík um kl. 17 sunnudaginn 12. maí sl. Meira »

Lækkun á flugfargjöldum í sumar

Lundúnaraugað á bökkum Thames.
13:25 Síðasta vor og sumar kepptust Iceland Express og Wow Air við að undirbjóða hvort annað. Verðið fór þó sjaldnast niður fyrir 10 þúsund krónur, en í dag auglýsir Wow Air flugmiða til London í sumar á 9.900 krónur. Ástæðan er samkeppni við Easy Jet. Meira »

Úrskurður ekki í samræmi við lög

Samkvæmt gögnum málsins sótti konan um að gera námssamning við Vinnumálastofnun í janúar 2010 er ...
12:32 Settur umboðsmaður Alþingis mælist til þess að úrskurðarnefnd atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða taki mál konu til nýrrar meðferðar, en nefndin felldi niður bótarétt hennar í tvo mánuði og gerði henni að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur. Úrskurðurinn var ekki í samræmi við lög. Meira »

Ástand mannsins óbreytt

Frá Landspítala.
13:50 Ástand karlmanns sem slasaðist við árekstur húsbíls og rútu á Snæfellsnesi um helgina er óbreytt samkvæmt upplýsingum frá Landspítalanum. Manninum hefur verið sofandi í öndunarvél síðan slysið varð. Meira »

Dregið úr varúðarráðstöfunum

Dimmuborgir í Skútustaðahreppi.
13:09 Búið er að opna Stórahring í Dimmuborgum að sögn Umhverfisstofnunar. Vonast er til að hægt verð að opna alla göngustígana í Dimmuborgum um næstu helgi. En nánari tilkynning verður birt þegar þar að kemur. Meira »

Fjallavinir fóru á Öræfajökul

Frá ferð Fjallavina á Öræfajökul.
12:09 Fjallavinir nýttu sér veðurblíðuna um helgina og fóru á Öræfajökul. Ferðin gekk vel og var leiðangurinn heppinn með bæði færi og veður. Þórður Ingi Marelsson, fararstjóri, segir að ferðin hafi tekist mjög vel. Útsýnið af tindinum hafi verið með besta móti, sést hafi bæði í Herðubreið og Snæfell. Meira »
BARCELONA - Pantaðu núna! Júlí / Ágúst laust
Barcelona er ein fallegasta borg Evrópu. Við erum með allskonar húsnæði til leig...
Póstkort
Langar þig að fá póstkort sent einhvers staðar úr heiminum? Þá er www.postcrossi...
Íbúð í neðra Breiðholti til leigu
Til leigu góð 4ra herbergja íbúð í neðra Breiðholti. Laus strax, verð 180 þús. ...
Sófi, sófaborð spegill og sjónvarpshilla frá Casa
Legustóll KI10 DoDo frá Casa, ásamt fleiru til sölu. Uppl. í s. 8966653 og stein...
 
Til sölu stofnfjárbréf í sparisjóði strandamanna

Til sölu Stofnfjárbréf í Sparisjóði Stra...
Framhaldsskólakennarar
Grunn-/framhaldsskóla
Framhaldsskólakennarar â€" Menntas...
Sýslumaðurinn á selfossi - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
15454 gufuskálar til leigu - ríkiskaup

Óskað er eftir tilboðum í leigu á h...