Íslandsför stöðvuð í Noregi

Frá flugstöð Leifs Eiríkssonar á Keflavíkurflugvelli stækka

Frá flugstöð Leifs Eiríkssonar á Keflavíkurflugvelli mbl.is/Sigurgeir Sigurðsson

Tveir Króatar sem voru á leið til Íslands voru stöðvaðir af norskum yfirvöldum á Gardermoen-flugvellinum í Osló í lok febrúar á þeim grundvelli að þeir uppfylltu ekki skilyrði til þess að koma inn á Schengen-svæðið.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Suðurnesjum munu þeir ekki hafa haft nægilegt fé til framfærslu. Ekkert liggur fyrir um hvort Króatarnir tveir hugðust sækja um hæli hér á landi en næstum allir þeir króatísku ríkisborgarar sem hafa sótt um hæli hér á landi frá áramótum hafa millilent í Osló.

Síðast komu tveir hælisleitendurnir hingað frá Króatíu, í gegnum Osló, aðfaranótt þriðjudags. Þar með voru hælisumsóknir frá króatískum ríkisborgurum orðnar 40 frá því seint á árinu 2012 og til dagsins í dag. Í flestum tilfellum er um að ræða fólk úr serbneska minnihlutanum eða fólk í blönduðum hjónaböndum og koma margir frá borginni Vukovar sem er við landamærin að Serbíu. Í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag segir m.a., að engin óyggjandi skýring á þessum skyndilega straumi frá Króatíu hafi fundist.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

19. júní á rafrænu formi

19. júní ársrit Kvenréttindafélags Íslands.
Í gær, 23:57 Ársrit Kvenréttindafélags Íslands, 19. júní, kom út í dag að vanda en það er með elstu tímaritum hér á landi og kom fyrst út árið 1951. Að þessu sinni varð hins vegar sú breyting á að tímaritið kom út á rafrænu formi en ekki sem hefðbundið blað. Meira »

Safna fyrir útför ungs drengs

Hólskirkja í Bolungarvík.
Í gær, 23:42 „Sagt er að það þurfi heilt bæjarfélag til að ala upp barn. Öll börn okkar litla samfélags eru á einn eða annan hátt, okkar börn. Nú höfum við orðið fyrir þeim hræðilega harmleik að þurfa að sjá á eftir einum okkar dýrmæta syni, Ísaki Inga Guðbjartssyni sem lést í liðinni viku.“ Meira »

Blómsveigur á leiði Bríetar

Blómsveigur lagður á leiði Bríetar Bjarnhéðinsdóttur í dag.
Í gær, 22:49 Kvenréttindafélag Íslands lagði blómsveig að leiði baráttukonunnar Bríetar Bjarnhéðinsdóttur í dag í tilefni af kvenréttindadeginum. Gengið var fylktu liði frá Ráðhúsi Reykjavíkur að leiði Bríetar í Hólavallakirkjugarði þar sem flutt voru ávörp og flutt tónlistaratriði. Meira »

„Sumarið er komið fyrir löngu“

Kristín Hermannsdóttir er hætt sem veðurfræðingur
Í gær, 22:45 „Sumarið er komið fyrir löngu,“ segir Kristín Hermannsdóttir veðurfræðingur en margir landsmenn hafa látið veðrið trufla sig að undanförnu og lögreglan á Suðurnesjum lýsti eftir sumrinu um helgina. Meira »

Heyskapur víða að komast í gang

Í gær, 22:17 Bændur huga margir að heyskap um þessar mundir en ástand túna er æði misjafnt eins og komið hefur fram undanfarið.  Meira »

Heit umræða um hjálmaskyldu

Þessi hjólreiðamaður sá ekki ástæðu til að nota hjálm.
Í gær, 21:42 Evrópusamband hjólreiðamanna leggst gegn hjálmaskyldu og segir að hún dragi úr hjólreiðum og að með henni sé ranglega gefið í skyn að hjólreiðar séu hættulegar. Allt eins mætti skylda gangandi vegfarendur eða þá sem aka um í bílum til að vera með hjálma. Heit umræða er um málið í Evrópu. Meira »

Kvennamessa við Þvottalaugarnar

Frá Kvennamessunni í dag.
Í gær, 22:31 Kvennakirkjan stóð fyrir árlegri Kvennamessu við Þvottalaugarnar í Laugardal í kvöld í tilefni af kvenréttindadeginum í samvinnu við Kvenréttindafélag Íslands og Kvenfélagasamband Íslands. Meira »

Sigmundur lét skila bíl Jóhönnu

Jóhanna Sigurðardóttir í Benz bifreiðinni á Bessastöðum.
Í gær, 21:55 Forsætisráðuneytið hefur skilað ráðherrabíl sem Jóhanna Sigurðardóttir, fyrrverandi forsætisráðherra, lét panta skömmu áður en hún lét af embætti. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra, ekur því um á bifreið sem keypt var í forsætisráðherratíð Halldórs Ásgrímssonar, árið 2004. Meira »

Selja hjólin sem gengu af

Mun fleiri hjól söfnuðust í ár en á síðasta ári.
Í gær, 21:38 Hjólasöfnun Barnaheilla - Save the Children á Íslandi gekk vonum framar og bárust 670 hjól frá því hún hófst í byrjun maí. Rúmlega 150 börn nutu góðs af söfnuninni og hafa þegar fengið afhent hjól. En þar sem hjól ganga af hefur verið ákveðið að selja þau á sanngjörnu verði. Meira »

Nafn mannsins sem féll í Hjaltadalsá

Í gær, 20:50 Maðurinn sem féll í Hjaltadalsá í Skagafirði þriðjudaginn 11. júní síðastliðinn hét Jón Ólafsson, til heimilis að Kárastöðum í Hegranesi í Skagafirði. Jón var 69 ára að aldri, fæddur 21. maí 1944. Hann var ókvæntur og barnlaus. Meira »

Hætti við kynleiðréttingu

Halldóra Theódórsdóttir hætti við kynleiðréttingu í miðju ferli.
Í gær, 20:47 „Ég iðrast þess ef þetta verður til þess að einhverjir horfi á mig og noti það kannski til að efast um annað transfólk,“ segir Halldóra Theódórsdóttir. Hún hóf kynleiðréttingu fyrir nokkru en hætti við síðastliðið haust. Meira »

Keimur af gamaldags viðhorfum

Dómarar í Hæstarétti
Í gær, 20:31 „Ég er mjög undrandi á niðurstöðunni og átti alls ekki von á henni. Einnig að þeir skuli endurmeta sönnunarfærsluna með þessum hætti í stað þess að ómerkja dóminn,“ segir Margrét Gunnlaugsdóttir, réttargæslumaður ungrar konu sem kærði tvo menn fyrir nauðgun. Þeir voru sýknaðir í Hæstarétti í dag. Meira »

Forseti ÍSÍ bráðkvaddur

Ólafur Eðvarð Rafnsson.
Í gær, 19:58 Ólafur Eðvarð Rafnsson, forseti Íþrótta- og ólympíusambands Íslands og forseti FIBA Europe, er látinn fimmtugur að aldri en hann var bráðkvaddur í Sviss fyrr í dag þar sem hann sótti fund miðstjórnar FIBA World. Meira »

Guðni Páll hefur safnað 4 milljónum myndskeið

kajagnarr
Í gær, 18:20 Hópur fólks hélt í Ráðhús Reykjavíkur í dag til að vekja athygli á verkefni Guðna Páls Viktorssonar sem fer nú umhverfis landið á kajak til styrktar Samhjálp. Jón Gnarr borgarstjóri tók á móti hópnum en Guðni Páll hefur safnað tæpum fjórum milljónum til þessa en betur má ef duga skal. Meira »

Takmörkunum á neyslu vatns aflétt

Í gær, 18:07 Takmörkunum sem voru á neyslu vatns úr Garðsvíkurvatnsbóli Svalbarðsstrandarveitu í Svalbarðsstrandarhreppi án þess að það væri fyrst soðið hefur verið aflétt samkvæmt tilkynningu frá Norðurorku. Meira »

200 hjóla í WOW Cyclothon myndskeið

wow_mbl
Í gær, 18:32 Hjólreiðakeppnin WOW Cyclothon hófst við tónlistar- og ráðstefnuhúsið Hörpu klukkan 18.00 í dag en í keppninni, sem er alþjóðleg, er hjólað hringinn í kringum Ísland í boðsveitum. Þetta er annað árið í röð sem keppnin fer fram. Meira »

Enginn með allar tölur réttar

Í gær, 18:18 Enginn reyndist með allar tölurnar réttar í Víkingalottói kvöldsins en fyrsti vinningur var að þessu sinni 532.407.220 krónur Enginn hlaut heldur annan vinning, fimm af sex tölum réttar auk bónustölu. Meira »

Stelpur forrituðu á kvenréttindadaginn

Í gær, 17:31 „Stelpurnar eru snillingar og standa sig ótrúlega vel,“ segir Erla María Tölgyes, starfsmaður Skema. Í dag sóttu 20 stelpur á aldrinum 10 til 13 ára forritunarnámskeið á vegum fyrirtækisins þar sem þær lærðu meðal annars að forrita tölvuleiki. Námskeiðið fór fram í Háskólanum í Reykjavík. Meira »
Ford húsbíll
Til sölu Ford econoline árg '84 6,9 dísel ískapur ,olíumiðstöð, stór kassi að a...
HARÐVIÐUR TIL HÚSBYGGINGA
Harðviður til húsabygginga  Sjá nánar á www.vidur.is Vatnsklæðning, panill, pall...
Fellistigar - Flóttastigar gott verð
Frábært verð á 3,9 m lengd Hentugir fyrir sumarhúsog fl. Einfalt að stytta ef þa...
Sófaborð og hornborð
Til sölu sófaborð og hornborð í stíl úr dökkum við. Tilboð. Verðhugmynd fyrir b...
 
Útboð nr. 13065 - eldsneyti

Útboð Reykja vík ur borg Inn kaupade...
Styrkur´- minningarsjóður karls j sighvatssonar

Stjórn Minningarsjóðs Karls J. Sighvatss...
Sýslumaðurinn í reykjavík - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Samkoma alþjóðakirkjan
Félagsstarf
Kl. 11.00. Samkoma. Ræðumaður...