Ný tegund bættist við flóru Íslands

Sverðnykra. Mynd frá Náttúrufræðistofu Kópavogs. stækka

Sverðnykra. Mynd frá Náttúrufræðistofu Kópavogs.

Ný háplöntutegund, sverðnykra, bættist við flóru landsins síðastliðið sumar þegar starfsmenn Náttúrufræðistofu Kópavogs voru við rannsóknir í Berufjarðarvatni nærri Bjarkalundi í Reykhólahreppi. Staðfesting á tegundagreiningunni fékkst nú á dögunum.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Náttúrufræðistofu Kópavogs. Fram kemur að sverðnykran beri fræðiheitið Potamogeton compressus og tilheyri hópi rúmlega 40 vatnaplantna sem lifi hér á landi, en alls séu þekktar um 490 háplöntutegundir í landinu.

„Sverðnykran vex á kafi í vatni og líkist helst grasi. Hún er hávaxin, verður allt að 2 m á hæð, og ber mjó, aflöng blöð sem eru um 0,5 cm breið og allt að 20 cm á lengd.
Sverðnykran í Berufjarðarvatni óx í þéttum breiðum á um 1,7 m dýpi, en mesta dýpi vatnsins mældist 2 m. Berufjarðarvatn liggur í 49 m h.y.s. og telst fremur lítið vatn, eða um 0,15 km2. Vatnið var mjög gróskumikið og í því uxu einnig síkjamari, grasnykra, fjallnykra, smánykra, þráðnykra, lónasóley, flagasóley, lófótur og gulstör.

Sverðnykran er evrópsk tegund og því markar þessi fundur hennar hér á landi ný vesturmörk á útbreiðslu tegundarinnar. Tegundin hefur átt undir högg að sækja víða í Evrópu vegna mengunar og röskunar á búsvæðum og því er hún á válista margra landa, þ. á m. í Bretlandi, Noregi, Svíþjóð, Danmörku og Þýskalandi,“ segir í tilkynningunni.

Þá kemur fram, að rannsókn Náttúrufræðistofunnar á Berufjarðarvatni sé hluti af umfangsmiklu verkefni sem gangi undir heitinu Natura Ísland og sé á vegum Náttúrufræðistofnunar Íslands. Meginmarkmið verkefnisins sé að efla þekkingu á vistgerðum landsins í því skyni að stuðla að skynsamlegri umgengni og notkun á gæðum náttúrunnar. Í verkefninu séu verndargildi og verndarþörf vistgerða og tegunda metin og lagðar fram tillögur um verndarsvæði. Verkhluti Náttúrufræðistofu Kópavogs snúi að vistgerðum í ferskvatni og hófust rannsóknir á síðasta ári með athugunum á gróðri í 40 vötnum á sunnan- og vestanverðu landinu. Um sé að ræða fyrstu skipulegu rannsóknina á tegundasamsetningu og útbreiðslu vatnagróðurs í landinu.



  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Segir Gæsluna keppa við einkaaðila

Þyrla Landhelgisgæslunar, TF LIF.
11:38 „Þá kom þessi úrskurður um að Landhelgisgæslan ætti ekki að vera í svoleiðis verkefnum nema að einkafyrirtæki sem geta leyst svona verkefni gætu ekki sinnt því. Það er bullandi samkeppni milli þessara fyrirtækja, og þetta er mjög sérstakt, sérstaklega ef þeir eru að fá greitt fyrir þetta.“ Meira »

Ráðuneytið pantaði ekki nýjan bíl

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson.
11:36 Forsætisráðuneytið hafði ekki pantað nýjan bíl fyrir fyrrverandi forsætisráðherra undir lok kjörtímabilsins eins og lesa má í umfjöllum Viðskiptablaðsins í dag. Ráðuneytið hefur því ekki heldur afpantað bíl eins og fjallað er um. Meira »

Meiri sala á fitu en próteini

Vænn biti af smjöri.
11:27 Sala á fituríkum mjólkurvörum er nú orðin meiri en sala á próteinríkum afurðum samkvæmt nýju yfirliti um framleiðslu og sölu á mjólkurafurðum sem hefur ekki gerst í áratugi. Þá hefur það einnig gerst í fyrsta skipti síðan 1980 að sala á smjöri er meiri en 1.000 tonn á einu ári. Meira »

„Vel hægt að leysa málin með vilja“

11:22 „[Það er] leitt að ráðherra skuli telja sig þurfa að kasta fram fullyrðingum um óframkvæmanleika þegar vel er hægt að leysa málin með vilja og að því virðist í þeim tilgangi að dreifa athyglinni frá kjarna málsins,“ segja aðstandendur undirskriftasöfnunar um óbreytt veiðigjald. Meira »

Fyrsta ræða yngsta þingmannsins

Jóhanna María í ræðustól.
10:43 Jóhanna María Sigmundsdóttir, þingmaður Framsóknarflokks og jafnframt yngsti þingmaður Íslandssögunnar, hélt jómfúarræðu sína á Alþingi í morgun. Meira »

Langt gengið í afnámi trúnaðarskyldu

10:30 Ekki verður annað sagt en að með frumvarpi Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar forsætisráðherra um breytingu á lögum um Hagstofu Íslands sé gengið mjög langt í því að afnema það sem menn telja að sé eðlilegur trúnaður um persónuleg málefni einstaklinga í viðskiptum sínum við fjármálafyrirtæki. Meira »

Morðrannsókn í Valle langt komin

11:04 Lögreglan í Valle í Noregi mun á næstu dögum óska eftir að gæsluvarðhald yfir Íslendingi, sem er grunaður um morð, verði framlengt. Yfirheyrslum og skýrslutökum er að mestu lokið en verið er að bíða eftir niðurstöðum tæknirannsóknar. Meira »

Færri reiðhjólum stolið í borginni

Það borgar sig að læsa hjólinu.
10:37 Tilkynnt var um 337 þjófnaði til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í maí sem er nokkur fækkun frá síðasta mánuði. Fara þarf aftur til ársins 2008 til að finna færri þjófnaði á reiðhjólum í maímánuði. Meira »

Baggalútur fóstrar handrit frá 17. öld

Bragi Valdimar Skúlason.
10:18 Bragi Valdimar Skúlason textasmiður og Baggalútur með fleiru, fóstrar handritið Kvæðabók úr Vigur, pappírshandrit frá 17. öld, og opnar sýningu í Vigur í Ísafjarðardjúpi þriðjudaginn 25. júní kl. 15. Meira »

Líka fyrir fatlaða íþróttamenn myndskeið

laxlaxlax
09:55 Ólafur Ólafsson, formaður íþróttafélagsins Aspar, er að vonum ánægður með daginn þar sem hann var bæði útnefndur sem Reykvíkingur ársins og hann náði jafnframt að krækja í sinn fyrsta lax í sumarblíðunni í Elliðaánum í morgun. Hann segir viðurkenninguna ekki síður vera fyrir fatlaða íþróttamenn. Meira »

Maðurinn kominn fram

09:52 Maðurinn, sem lögreglan lýsti eftir í gær, hefur gefið sig fram, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.  Meira »

Allir sendir í vopnaeftirlit

09:37 Þegar flugvélar frá Rússlandi og Kanada lenda á Keflavíkurflugvelli þurfa allir farþegar um borð að fara í gegnum vopnaeftirlit. Á hinum Norðurlöndunum þurfa aðeins þeir sem millilenda að fara í gegnum þessa háttar skoðun. Skipulagi Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar er kennt um. Meira »

Þórdís fékk fyrsta laxinn í Kjósinni

Þórdís Ólafsdóttir með fyrsta laxinn upp úr Laxá í Kjós í ár
09:27 Þórdís Ólafsdóttir á Valdastöðum í Kjós landaði fyrsta laxinum úr Laxá í Kjós í morgun en veiði hófst í ánni klukkan átta í morgun. Meira »

Börkur undir læknishendur

Börkur Birgisson í fylgd lögreglumanns.
08:30 Börkur Birgisson, sem ákærður hefur verið ásamt öðrum manni fyrir að hafa orðið manni að bana á Litla-Hrauni í maí á síðasta ári, var í gær sendur í læknisskoðun. Meira »

Stækkun friðlandsins verður að veruleika

Þjórsárver
07:45 Umhverfis- og auðlindaráðherra Sigurður Ingi Jóhannsson mun á morgun undirrita friðlýsingarskilmála vegna friðlands í Þjórsárverum í Árnesi, Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Við sama tækifæri munu fulltrúar sveitarfélaganna undirrita yfirlýsingu um friðlýsinguna. Meira »

Gatnamót Höfðabakka og Bæjarháls lokuð

Unnið að malbikun.
09:14 Í kvöld verða gatnamót Höfðabakka og Bæjarháls malbikuð. Gatnamótin verða því lokuð frá frá kl 22:00 og gatnamótin opna aftur kl 6:30 í fyrramálið. Meira »

Spá hlýju veðri SV-lands

Verður tilefni til að setja upp sólgleraugun í dag?
07:55 Í dag geta þeir sem halda til á suðvesturhorni landsins átt von á hlýju veðri en norðan- og austanlands er hins vegar spáð vætu af og til fram á kvöld. Meira »

Búið að skipa nýtt kokkalandslið

Talið efst frá vinstri: Hákon Már Örvarsson faglegur framkvæmdastjóri, Bjarni Siguróli Jakobsson Slippbarnum, Þráinn Freyr ...
07:33 Nýtt kokkalandslið sem er skipað tólf matreiðslumönnum, tíu körlum og tveimur konum, hefur verið skipað en Hákon Már Örvarsson var fyrir skömmu ráðinn faglegur framkvæmdastjóri liðsins. Meira »
Steypuhrærivélar 10-14 m3 á klst 350L
Getum útvegað þessar steypuhrærivélar . 12 hp mótor rafdrifnar eða diesel mótor....
Honda cbr 600 rr til sölu
Rauð og svört, keyrð 9000. Nýtt afturdekk og nýr geymir. Verð tilboð. Uppl. á ...
Nuddstóll á 37.000 - Hentar fyrir nuddara, tattú eða það sem þér dettur í hug.
Nuddstóll til sölu www.simnet.is/eirikurs/nuddbord.html S: 8626194 Léttur og þæ...
Sumarhús til leigu
Sumarhúsið Hruni við Hellissand, rétt austan við þjóðgarðinn Snæfellsjökull, er...
 
Kveðjusamkoma - hjálpræðisherinn
Félagsstarf
Sunnudaginn 16. júní kl. 16:30 v...
Starfsmaður óskast í 50% starf
Skrifstofustörf
Dýraverndarsamband Íslands leitar að st...
Verkefnastyrkur - myndstef

Verkefnastyrkir og ferða- og menntunar...
Sýslumaðurinn í reykjavík - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....