Rax fékk blaðamannaverðlaun ársins

Handhafar blaðamannaverðlaunanna: Ragnar, Sigmar, Sunna og Jóhann.
Handhafar blaðamannaverðlaunanna: Ragnar, Sigmar, Sunna og Jóhann. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Ragnar Axelsson, Morgunblaðinu, fékk blaðamannaverðlaun ársins fyrir merka umfjöllun og myndir af stórum pollum á Grænlandsjökli sem eru til marks um óvenjumikla bráðnun Grænlandsjökuls. Verðlaunin voru afhent í Gerðarsafni í dag.

Sigmar Guðmundsson, Kastljósi, fékk verðlaun fyrir viðtal ársins fyrir sérstaklega áhrifaríkt og sterkt viðtal við Eirík Inga Jóhannsson sjómann sem komst lífs af þegar togarinn Hallgrímur fórst.

Sunna Valgerðardóttir, Fréttablaðinu, hlaut verðlaun fyrir umfjöllun ársins fyrir áhrifamikla, heildstæða og vel unna röð fréttaskýringa um stöðu geðfatlaðra.

Jóhann Bjarni Kolbeinsson, fréttastofu RÚV, fékk verðlaun fyrir rannsóknarblaðamennsku ársins, fyrir uppljóstrandi og ítarlega umfjöllun um kadmíum í áburði annars vegar og notkun iðnaðarsalts í matvælum hins vegar.

Tilnefnt var í fjórum flokkum og voru tilnefningar eftirfarandi:

Umfjöllun ársins

Egill Ólafsson, mbl.is, fyrir vandaðan, skjótan og alhliða fréttaflutning af illviðri og snjókomu í september 2012, þar sem frá upphafi var dregin fram og skilgreind yfirvofandi ógn fyrir fólk og búfénað.

Kristjana Guðbrandsdóttir, DV, fyrir viðamikinn og vandaðan greinaflokk um einhverfu, ýmsar birtingarmyndir hennar og vandamál við greiningu, ekki síst hjá stúlkum.

Sunna Valgerðardóttir, Fréttablaðinu, fyrir áhrifamikla, heildstæða og vel unna röð fréttaskýringa um stöðu geðfatlaðra.

Rannsóknarblaðamennska

Andri Ólafsson, Stöð 2, fyrir afhjúpandi fréttir af aðkallandi fjárhagsvanda hjúkrunarheimilisins EIR

Jóhann Bjarni Kolbeinsson, fréttastofu RÚV, fyrir uppljóstrandi og ítarlega umfjöllun um kadmíum í áburði annars vegar og notkun iðnaðarsalts í matvælum hins vegar.

Jóhannes Kr. Kristjánsson, Kastljósi, fyrir að draga fram óbirtar og gagnrýnar skýrslur Ríkisendurskoðunar um bókhaldskerfi ríkisins og fyrir að varpa, ásamt Helga Seljan ljósi á umdeild atriði varðandi innleiðingu kerfisins.

Viðtal ársins

Anna Brynja Baldursdóttir, Vikunni, fyrir opinskátt viðtal við Agnesi M. Sigurðardóttur, biskup sem tjáði sig þar með einlægum hætti um bæði persónuleg mál sín og atriði sem varða embættið.

Sigmar Guðmundsson, Kastljósi, fyrir sérstaklega áhrifaríkt og sterkt viðtal við Eirík Inga Jóhannsson, sjómann sem komst lífs af þegar togarinn Hallgrímur fórst.

Skapti Hallgrímsson, Morgunblaðinu, fyrir sérstaklega vel skrifað og lifandi mannlífsviðtal við eistneska tónlistarmanninn Valmar Valjots.

Blaðamannaverðlaun ársins

Ingi Freyr Vilhjálmsson, DV, fyrir umfjöllun um fiskveiðar Íslendinga við Afríku og ýmis skrif um viðskipti og uppgjör í kjölfar hrunsins.

Ragnar Axelsson, Morgunblaðinu, fyrir merka umfjöllun og myndir af stórum pollum á Grænlandsjökli sem eru til marks um óvenju mikla bráðnun Grænlandsjökuls.

Una Sighvatsdóttir, mbl.is, fyrir greinaflokkinn Váin á vegunum, þar sem fjallað var um umferðarslys frá mörgum sjónarmiðum með því að tvinna saman ýmsar fjölmiðlagáttir s.s. netið, gagnvirka grafíska framsetningu og myndskeið.

Verðlaunagripur Blaðamannaverðlaunanna.
Verðlaunagripur Blaðamannaverðlaunanna. Af vef Blaðamannafélags Íslands
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert