Byggingu fangelsis lokið 2015

Tillaga Arkís að nýju fangelsi á Hólmsheiði
Tillaga Arkís að nýju fangelsi á Hólmsheiði

Auglýst hefur verið eftir tilboðum í framkvæmdir við jarðvinnu á lóð fangelsis á Hólmsheiði og nýlagnir veitna að henni. Verkinu skal að fullu vera lokið eigi síðar en 15. október 2013 en þó skal skila framkvæmdum innan lóðar fyrr, eða hinn 28. júní 2013.

Nýja fangelsið verður með 56 fangarýmum og á að leysa af hólmi Hegningarhúsið við Skólavörðustíg og fangelsi í Kópavogi. Þá er og gert ráð fyrir að gæsluvarðhaldsdeild á Litla-Hrauni verði lögð niður og aðstaða hennar tekin fyrir afplánun. Stefnt er að því að ljúka framkvæmdum og taka bygginguna í notkun vorið 2015.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert