Ekki í nafni allrar íslensku þjóðarinnar

Samtökin '78, hagsmuna- og baráttusamtök samkynhneigðra, tvíkynhneigðra og transgender fólks á Íslandi, vilja í fyllstu kurteisi lýsa því yfir að forseti Íslands skrifaði svo sannarlega ekki fyrir hönd allra landsmanna þegar hann sendi nýkjörnum páfa heillaóskakveðju í nafni íslensku þjóðarinnar.

Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá samtökunum.

„Páfagarður og nýjasti foringi hans hefur ítrekað haft uppi hatursfulla og meiðandi orðræðu í garð hinsegin fólks, en Frans páfi líkir ættleiðingum samkynhneigðra við barnamisnotkun og telur hjónabönd samkynhneigðra verk djöfulsins. Vatíkanið hefur einnig unnið gegn notkun getnaðarvarna og skipt sér af líkömum og sjálfræði kvenna. Samtökin ´78 hafa ekki áhuga á að senda slíku embætti heillaóskir og olli það vonbrigðum að svo hefði verið gert fyrir hönd félagsmanna, í gegnum embætti forseta Íslands. Það er særandi fyrir hinsegin fólk og úr takti við stefnu lands og þjóðar í mannréttindamálum. Þess í stað senda Samtökin ´78 vonarkveðju til páfa um að hann vakni úr martröð miðalda og byrji að beita sér fyrir mannréttindum allra. Vilja samtökin bjóða honum og samstarfsmönnum í Vatíkaninu á fræðslufund sér að kostnaðarlausu,“ segir í yfirlýsingunni.

Frétt mbl.is: Forsetinn sendi páfa heillaóskir

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert