Funda um þinglok klukkan 21:30

Frá störfum þingsins í dag.
Frá störfum þingsins í dag. mbl.is/Styrmir Kári

Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, hefur boðað formenn þingflokkanna á fund sinn klukkan hálf tíu í kvöld til að ræða hugsanleg þinglok, samkvæmt öruggum heimildum mbl.is.

Samkvæmt dagskrá Alþingis átti störfum þess að ljúka síðastliðinn föstudag en þinghald hélt áfram síðastliðinn laugardag og hefur staðið meira og minna yfir frá því klukkan tíu í morgun en 39 mál eru eftir á dagskrá þingfundarins sem nú stendur yfir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert