Leiga fyrir bankahólf hækkaði um 166%

Margir kvarta undan verðbreytingum hjá fjarskiptafélögunum.
Margir kvarta undan verðbreytingum hjá fjarskiptafélögunum. mbl.is

Viðskiptavinur Arion banka sem árið 2010 greiddi 3.000 krónur fyrir ársleigu á bankahólfi greiðir í dag 8.000 krónur. Þetta er 166% hækkun á þremur árum.

Þetta er meðal þeirra ábendinga sem almenningur hefur sent inn á verðvakt ASÍ Vertu á verði. Bankahólf Arion banka eru af tveimur stærðum og kostar leigan 7.000 kr. fyrir minni hólfin og 8.000 kr. fyrir stærri hólfin. Viðskiptavinir sem eru í vildarþjónustu hjá bankanum greiða lægra gjald.

Gjald fyrir sjónvarpsáskrift hækkar

Einn viðskiptavinur sem er með áskrift að Stöð 2 Sport 2 sendi ábendingu um verðbreytingar hjá fyrirtækinu: „Um miðjan september fékk ég tilboð um áskrift í ca. þrjá og hálfan mánuð á mánaðargjaldi 4.542,- kr. í stað 6.101,- kr. Tveimur mánuðum eftir að tilboðinu lauk er búið að hækka mánaðargjaldið í 7.071 kr. Þannig mun fyrirtækið taka til baka lækkunina í þessu þriggja mánaða tilboði á 4-5 mánuðum.“

Annar bendir á að í júní 2010 kostaði mánaðaráskrift af Skjá einum 2.200 kr., en núna kostar mánaðaráskrift 4.490 kr. Þetta er yfir 100% hækkun.

Þá bendir annar á að hann hafi keypt sjónvarpspakka frá Símanum á 3.090 kr. árið 2012, en nú þurfi hann að greiða rúmar 5.000 kr.

Allir segjast hafa þá sögu að segja að þeir hafi enga viðvörun fengið um að fyrirhugað væri að hækkað gjaldið.

Hækkanir hjá fjarskiptafyrirtækjunum

Þeir sem senda inn ábendingar kvarta mikið undan verðhækkunum hjá fjarskiptafyrirtækjunum.

Einn vekur athygli á að grunnáskrift á IPTV hjá Símanum hafi árið 2011 kostað 490 kr. á mánuði eða 5.880 kr á ári. „2012 var það orðið 990 kr = 11.880 kr á ári yfir 100% hækkun milli ára. Nú 2013 er það komið í 1490 kr= 17.880 á ári yfir 50% hækkun milli ára. Þannig að frá 2011 hefur Síminn hækkað þetta gjald um 200%“

Einn vekur athylgi á að Nova hafi tilkynnt að frá 1. apríl munu fyrirtækið taka 70 króna gjald fyrir það eitt að senda reikning í heimabankann þinn. Mánaðargjald vegna pungs frá Nova hafi kostað 990 kr. en sé núna komið í 1.190 kr. 5 GB mánaðargjald hafi kostað 1.000 kr, en kosti núna 1.500 kr.

Annar bendir á að ljósleiðaraáskrift hjá Gagnaveitunni sé að hækka í 2.725 kr. í greiðsluþjónustu hjá bankanum, en gjaldið var 2.410 kr.

 Bent er á að netaðgangsáskrift hjá Hringdu.is kostar nú 2.655 kr pr mánuði en var á 1995 kr.

Þá er vakin athygli á því að hjá Avant var tilkynningar- og greiðslugjald kr. 275, en eftir að lán Avant voru flutt til Landsbanka hækkaði þetta gjald fljótlega upp í kr. 595.

Að lokum má benda á athugasemd viðskiptavinar Símans sem var með myndlykil í leigu. „Fór að skoða reikninga frá Símanum eftir að hafa heyrt af þessum vef. Komst að því að löngu eftir að myndlykli var skilað er verið að rukka fyrir leigu þrátt fyrir að hafa sagt upp bæði heimasíma og myndlykli á sama tíma og skilað myndlykli. Fjárhæðin er ekki svo há þannig að þegar reikningar eru rafrænir fer þetta framhjá manni.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert