Kosið verði um ESB 27. apríl

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, alþingismaður.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, alþingismaður. mbl.is/Ómar Óskarsson

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir hefur lagt fram þingsályktunartillögu þess efnis að fram fari þjóðaratkvæðagreiðsla um hvort haldið skuli áfram aðildarviðræðum Íslands og Evrópusambandsins, samhliða alþingiskosningum 27. apríl 2013. 

Til vara leggur Þorgerður Katrín til að þjóðaratkvæðagreiðslan fari ekki síður fram en samhliða sveitarstjórnarkosningum árið 2014. Hún bendir á að núverandi ríkisstjórn hafi hægt á viðræðunum fram yfir kosningar. Þær verði vart hafnar af fullum krafti aftur nema skýrt umboð fáist til þess.

„Ekki hefur komið fram nein efnisleg gagnrýni á niðurstöður í þeim samningsköflum sem þegar liggja fyrir. Skoðanakannanir benda til þess að meiri hluti Íslendinga vilji ljúka viðræðunum en mikilvægt er að þeir sem myndi komandi ríkisstjórn hafi skýrt umboð. Best er að það umboð komi milliliðalaust frá þjóðinni, enda hafa jafnvel landsfundir eða flokksþing flokka sem ekki styðja aðild lýst því yfir að þjóðaratkvæðagreiðslu sé þörf um málið,“ segir Þorgerðru Katrín.

Áríðandi fyrir Íslendinga að loka ekki dyrunum

Sjálf hefur Þorgerður Katrín verið meðal yfirlýstra Evrópusinna innan Sjálfstæðisflokksins. Í greinargerð með tillögunni segir hún að þótt hún telji eindregið að hagsmunum Íslendinga sé best borgið með því að ljúka aðildarviðræðunum á næsta kjörtímabili, m.a. til að fjölga valkostum landsins til framtíðar í gjaldmiðilsmálum, sé ljóst að skiptar skoðanir eru innan flestra stjórnmálaflokka um málið.

Allir flokkar hafi annaðhvort lýst því yfir að viðræðum skuli lokið eða að þjóðaratkvæðagreiðsla fari fram um málið. „Því er mikilvægt að tímasetja slíka atkvæðagreiðslu og að sem flestir taki þátt í henni til þess að vilji þjóðarinnar birtist á sem skýrastan hátt. Áframhald málsins mun því liggja fyrir á næsta kjörtímabili og draga úr langvarandi deilum um aðildarviðræðurnar meðal stjórnmálamanna og almennings,“ segir Þorgerður Katrín.

„Innan Evrópusambandsins hafa komið upp mikilvæg ný atriði sem valda því að mjög áríðandi er fyrir Íslendinga að loka ekki dyrum á þessari stundu. Nægir þar að nefna nýja sjávarútvegsstefnu sambandsins sem samþykkt verður í ár, viðræður um viðamikinn fríverslunarsamning milli Evrópusambandsins og Bandaríkjanna og yfirlýsingu Camerons um að hann vilji efna til viðræðna um um breytingar á aðildarsamningi Breta. Öll þessi mál geta skipt Íslendinga miklu um langa framtíð,“ segir Þorgerður Katrín.

Samkvæmt tillögu hennar verður spurningin í þjóðaratkvæðagreiðslunni svo hljóðandi, með valkostunum já eða nei:

„Vilt þú að Ísland haldi áfram aðildarviðræðum við Evrópusambandið og að aðildarsamningur verði borinn undir þjóðina til samþykktar eða synjunar?“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert