Munu fresta umræðu um stjórnarskrá

Alþingismenn.
Alþingismenn. Kristinn Ingvarsson

Samkvæmt heimildum mbl.is stendur til að stöðva umræðu um stjórnarskrá á Alþingi. Málið verði tekið af dagskrá og geymt. Á meðan verða önnur mál rædd til að létta af dagskrá þingsins.

Formenn þingflokkanna munu funda saman og reyna að ná samkomulagi um stjórnarskrármálið á meðan önnur mál eru tekin fyrir.

Ekki liggur fyrir hvort samkomulag sé innan seilingar og því er enn óljóst hvort að styttist í þinglok.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert