Óvissustig endurskoðað eftir páska

Hekla séð úr Þjórsárdal
Hekla séð úr Þjórsárdal mbl.is/Sigurður Bogi

Enn er í gildi óvissustig vegna Heklu. Engir atburðir eru nú í gangi sem benda til að eldgos sé yfirvofandi en í samráði við Veðurstofu Íslands verður áfram fylgst með þróun mála. Að óbreyttu verður staðan endurmetin í næstu viku. Þetta kemur fram í tilkynningu frá almannavörnum.

Senda skilaboð í farsíma

Veðurstofan og almannavarnadeild ríkislögreglustjóra standa vaktina yfir páskahátíðina og upplýsa almenning ef eitthvað nýtt kemur í ljós.

Ríkislögreglustjórinn og lögreglustjórinn á Hvolsvelli vara áfram við ferðum fólks á Heklu á meðan að óvissustig er í gildi.

Komi til atburðar við Heklu verður notast við boðunarkerfi Neyðarlínunnar sem sendir út skilaboð í alla þá farsíma sem eru tengdir farsímasendum næst fjallinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert