Tíðir hjólaþjófnaðir á Suðurnesjum

mbl.is/Kristinn Freyr Jörundsson

Lögreglan á Suðurnesjum hefur á undanförnum dögum fengið allmargar tilkynningar um þjófnaði úr hjólageymslum í umdæminu.

Úr einni geymslunni var stolið nýlegri rafmagnsvespu að verðmæti um 130 þúsund krónur og úr sameign á öðrum stað var reiðhjóli stolið, þar sem það stóð læst með hjólalás.

Í þriðja tilvikinu hafði verið farið inn í hjólageymslu og þaðan stolið nokkrum reiðhjólum. Í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum segir að málin séu í rannsókn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert