Sinueldur í Gufuneskirkjugarði

Hér má sjá ummerkin eftir brunann í garðinum í dag.
Hér má sjá ummerkin eftir brunann í garðinum í dag. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins fékk tilkynningu kl. 18:40 í kvöld um sinueld í Gufuneskirkjugarði. Einn dælubíll fór á vettvang og vel gekk að ráða niðurlögum eldsins.

Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu brunnu nokkur hundruð fermetrar af sinu á svæðinu. Óljóst er af hvaða völdum eldurinn braust út.

Frá vettvangi í kvöld.
Frá vettvangi í kvöld. Ljósmynd/Helen Sif Halldórsdóttir
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert