Vilja upplýsingar um látinn ferðamann

Þekkir þú þennan mann?
Þekkir þú þennan mann?

Rannsóknardeild lögreglunnar á Akranesi óskar eftir upplýsingum um ferðamann sem fannst látinn í Dritvík á Snæfellsnesi þann 28. mars. Talið er að hinn látni sé franskur og hafi dvalið á landinu í u.þ.b. mánuð.

Meðfylgjandi ljósmynd er af hinum látna.

Þeir sem geta gefið upplýsingar sem hjálpa til við að bera kennsl á manninn hafi samband við Lögregluna á Akranesi í síma 4440111.

Frétt mbl.is: Líkfundur á Snæfellsnesi

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert