Vilja ljúka viðræðunum við ESB

AFP

Hafin er undirskriftasöfnun á netinu þar sem hvatt er til þess að viðræðunum um inngöngu Íslands í Evrópusambandið verði haldið áfram og þeim lokið en frumkvæðið að henni á Illugi Jökulsson rithöfundur. Um tvö þúsund undirskriftir hafa safnast.

„Við undirrituð viljum ljúka samningum við ESB, svo við getum sjálf tekið upplýsta ákvörðun um hvort aðild hentar okkar eða ekki. Við viljum ekki treysta þingmönnum einum fyrir því. Við erum alls ekki öll sannfærð um að aðild að ESB henti okkur. En við viljum að þjóðin fái að ráða ferðinni. Við viljum klára dæmið,“ segir í tilkynningu.

Vefsíða söfnunarinnar

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert