Samið um aðstoð við hælisleitendur“

Ögmundur Jónasson og Kristján Sturluson undirrituðu samninginn í dag.
Ögmundur Jónasson og Kristján Sturluson undirrituðu samninginn í dag.

Samkvæmt samningnum sem innanríkisráðuneyti hefur gert við Rauða krossinn mun Rauði krossinn veita aðstoð og þjónustu við einstaklinga sem óska alþjóðlegrar verndar hér á landi.

Samninginn undirrituðu Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra og Kristján Sturluson, framkvæmdastjóri Rauða krossins á  Íslandi.

Samkvæmt samningnum mun Rauði krossinn veita aðstoð og þjónustu við einstaklinga sem óska alþjóðlegrar verndar hér á landi. Felst það meðal annars í hlutlausri og óháðri hagsmunagæslu, reglulegu samráði og samstarfi við stjórnvöld, viðtalstímum, heimsóknarþjónustu, félagsstarfi og fataúthlutun fyrir hælisleitendur, mati á aðbúnaði þeirra og fræðslu og kynningu fyrir stjórnvöld og aðra er málið varðar í samfélaginu.

Samningsupphæðin hljóðar upp þrjár milljónir króna og er gildistíminn til næstu áramóta, en samningurinn verður endurskoðaður fyrir þann tíma, segir í tilkynningu.

Hælisleitendum hér á landi hefur fjölgað mjög undanfarin misseri. Þannig óskuðu 76 einstaklingar eftir hæli árið 2011 og árið 2012 voru umsóknirnar 115, sem er 66% aukning milli ára. Það sem af er þessu ári hafa borist 81 umsókn um hæli.

„Á sama tíma hefur málsmeðferð orðið umsvifameiri og flóknari og því miður hafa stjórnvöld ekki náð að tryggja viðunandi málshraða hælisumsókna. Til að bregðast við þessu samþykkti ríkisstjórnin í mars síðastliðnum tillögu innanríkisráðherra um að efna til tímabundins átaks til að stytta málsmeðferðartíma hælisumsókna og tryggja búsetu og aðbúnað hælisleitenda.

Ráðinn var verkefnisstjóri sem hefur yfirumsjón með átakinu og starfsmönnum fjölgað tímabundið hjá innanríkisráðuneytinu og Útlendingastofnun. Liður í átaksverkefninu er að efla og treysta enn frekar samstarf stjórnvalda við Rauða krossinn og er það meðal annars gert með þeim samningi sem undirritaður var í dag,“ segir í tilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert