Davíð fékk skilorðsbundinn dóm

Davíð Örn Bjarnason.
Davíð Örn Bjarnason. mbl.is

Davíð Örn Bjarnason hefur verið dæmdur í eins árs og tíu daga skilborðsbundið fangelsi í Tyrklandi fyrir fornmunastuld en hann var tekinn á flugvelli í landinu fyrir nokkrum vikum með marmarastein í farteskinu. Dómurinn var kveðinn upp í dag. Davíð segist ekki þurfa að fara til Tyrklands vegna dómsins og ætli sér ekki þangað aftur.

Þetta kom fram í fréttum RÚV.

Davíð var hnepptur í varðhald í Tyrklandi í byrjun mars. Í lok þess mánaðar var honum sleppt og hann kom fljótlega til Íslands í faðm fjölskyldunnar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert