Þyrla Gæslunnar þurfti að nauðlenda

Bilun kom upp í Gná, þyrlu Landhelgisgæslunnar, þegar hún var á leið í útkall kl. 14:37 í dag og varð tafarlaust að lenda þyrlunni. Að sögn flugstjóra gekk lending vel og eru allir heilir á húfi. Ingibjörg, björgunarskip SL á Höfn í Hornafirði var þá kallað út og sótti það um kl. 16:00 veikan skipverja um borð í fiskiskip sem staðsett var um 10 sjómílur frá landi. Kom björgunarskipið til hafnar um kl. 16:30 og flytur sjúkraflugvél manninn frá Höfn til Reykjavíkur. 

Þyrlunni var lent í nágrenni Hornafjarðar og bíður nú þyrluáhöfnin eftir að þyrlan Syn komi á staðinn með flugvirkja og verður ástand þyrlunnar þá metið en bilunin kom upp í gírkassa. Athugað verður hvort mögulegt verður að framkvæma viðgerð á staðnum og fljúga þyrlunni til Reykjavíkur eða hvort verður nauðsynlegt að geyma hana fyrir austan þar til viðgerð lýkur.   

Gæslan aðeins með eina þyrlu til taks

Er Landhelgisgæslan því nú aðeins með eina þyrlu, Syn til taks og er hún með takmarkaða björgunargetu. Líf er í reglubundinni skoðun og Gná biluð.  Landhelgisgæslan hefur ítrekað bent á þörfina fyrir endurnýjun þyrluflotans. Gná og Syn eru báðar leiguþyrlur, Syn verður skilað í haust en Gná á næsta ári. Stefnir þá allt í að aðeins verði  ein þyrla, Líf í rekstri Landhelgisgæslunnar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert